Náttúran birtir nú sáðalmanak fyrir júlímánuð 2013. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

1.     00 – 19 blað, 20 – 24 ávextir
2.     00 – 24 ávextir
3.     07 – 19 ávextir, 20- 24 rót
4.     00 – 24 rót
5.     00 – 24 rót
6.     00 – 17 rót, 18 – 24 blóm
7.     00 – 17 blóm, 18 – 24 blað
8.     00 – 03 blað, 04 – 09 og frá 14 – 24 blóm
9.     00 – 04 blóm, 05 -24 blað
10.   00 – 22 blað
11.   00 – 24 ávextir
12.   00 – 24 ávextir
13.   00 – 18 ávextir
14.   00 – 24 rót
15.   00 – 24 rót
16.   00 – 24 rót
17.   00 – 06 rót, 07 – 10 og frá 18 – 24 blóm
18.   00 – 12 blóm, 13 – 24 blað
19.   00 – 24 blað
20.   00 – 06 blað, 07 – 24 blóm
21.   00 – 08 ávextir, 08 – 24 óhagstætt
22.   08 – 14 ávextir, 15 – 24 rót
23.   00 – 24 rót
24.   00 – 11 rót, 12 – 24 blóm
25.   00 – 24 blóm
26.   00 – 15 blóm, 16 – 22 blað
27.   00 – 11 blóm, 12 – 24 blað
28.   00 – 24 blað
29.   00 – 02 blað, 03 – 24 ávextir
30.   09 – 24 ávextir
31.   02 – 24 rót

Frá 6. til og með 20 júlí hagstætt tímabil til útplöntunar.

Sáðalmanak hvers dags birtist nú einnig á Viðburðardagatalinu hér til hægri á síðunni.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Eldhúsgarðurinn byrjar í huganum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
7. júlí 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson „Sáðalmanak fyrir júlí 2013“, Náttúran.is: 7. júlí 2013 URL: http://nature.is/d/2013/06/27/sadalmanak-fyrir-juli-2013/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. júní 2013
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: