Út er komið Jöklakort af Íslandi. Höfundar eru Oddur Sigurðsson, Richard S. Williams, Jr. og Skúli Víkingsson. Útgefandi er Veðurstofa Íslands (2013).

Jöklar setja mikinn svip á Ísland og hafa geysileg áhrif á land og þjóð. Í því breytilega loftslagi sem nú ríkir verða árlega stórbreytingar á jöklum. Þær verður að skrá og koma á framfæri. Þess vegna stendur Veðurstofan að útgáfu kortsins, sem sýnir alla jökla landsins og breytingar á þeim undanfarna öld.

Á Jöklakortinu eru settar saman á eitt kort útlínur allra jökla á landinu þannig að unnt sé að átta sig í einu vetfangi á umfanginu. Kortið sýnir mestu útbreiðslu jöklanna við hámark litlu ísaldar um 1890 og einnig eins og þeir voru um aldamótin 2000. Á kortinu eru framhlaupsjöklar greindir frá hinum og eldfjallaöskjur, sem vitað er um undir jökli, merktar. Tilgreind eru örnefni á öllum þeim jöklum sem nafn hafa hlotið. Bæklingur og örnefnaskrá fylgja kortinu. Þar er meðal annars greint frá stærð helstu jökla og stærðarbreytingum á 20. öld.

Jöklakort af Íslandi nýtist ferðafólki jafnt og fræðimönnum. Það verður til sölu í almennum bókaverslunum og á helstu ferðamannastöðum, en 50 kort verða seld óbrotin (stærð 118,9 x 84,1). Bókaútgáfan Iðnú sér um dreifinguna.

Mynd: Jöklakort af Íslandi.

Birt:
12. júní 2013
Tilvitnun:
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir „Jöklakort af Íslandi“, Náttúran.is: 12. júní 2013 URL: http://nature.is/d/2013/06/12/joklakort-af-islandi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: