Þriðjudaginn 21. maí 2013 verður haldið í Náttúrufræðistofnun Íslands við Urriðaholt í Garðabæ, málþing tileinkað minningu Guðmundar Kjartanssonar jarðfræðings en síðasta rannsóknarverkefni hans var aldursgreining og kortlagning Búrfellshrauns sem er samheiti á mörgum hraunum í Garðabæ og Hafnarfirði og runnið hafa frá Búrfellsgíg til sjávar. Guðmundur lést árið 1972.

Málþingið verður frá kl. 13:15 til 16:15 og að því loknu verður farið að Bala, staðar á bæjamörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar og neðan Hrafnistu, þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnarfjarðar, kynna sameiginlegt verkefni.

Að þessu málþingi standa auk Garðabæjar og Hafnarfjarðarbæjar, Náttúrufræðistofnun Íslands og félagið Hraunavinir.

Dagskráin verður þannig:

  1. Búrfellshraun og eldstöðvakerfi Krýsuvíkur: Kristján Jónasson jarðfræðingur
  2. Guðmundur Kjartansson og störf hans: Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur
  3. Faðir minn, Guðmundur Kjartansson: Solveig Guðmundsdóttir
  4. Örnefni í hraunalandslagi (Búrfellshraun) – hvaða máli skipta þau?: Reynir Ingibjartsson og Jónatan Garðarsson
  5. Fornminjar í Búrfellshrauni: Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur
  6. Verndun Búrfellshrauns: Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar
  7. Ógnir við hraun: Sigmundur Einarsson jarðfræðingur

Málþingsstjóri: Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra.

Aðgangur verður ókeypis en æskilegt að skrá sig hjá Náttúrufræðistofnun: sími 590 0500, netfang: ni@ni.is.

Ljósmynd: Óbrinnishólar, af hraunavinir.net.

Birt:
15. maí 2013
Höfundur:
Eydís Franzdóttir
Tilvitnun:
Eydís Franzdóttir „Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing“, Náttúran.is: 15. maí 2013 URL: http://nature.is/d/2013/05/15/burfellshraun-malthing-til-minningar-um-gudmund-kj/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: