logoSamtök grænmetisæta á Íslandi voru stofnuð laugardaginn 4. maí í sal Lifandi markaðar Borgartúni.

Um 70 manns sátu fundinn þar sem gengið var frá samþykktum félagsins, stjórn kosin og starfshópar myndaðir. Samþykkt var að tilgangur samtakanna yrði að stuðla að jákvæðri ímynd og fjölgun grænmetisæta, standa vörð um hagmuni þeirra og vinna að því að fjölga valkostum nauðsynja- og neysluvara án dýraafurða. Einnig var kynnt merki samtakanna sem hannað var af Ragnari Frey.

Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná með eftirfarandi hætti:

  • Standa fyrir fjölbreyttum viðburðum fyrir grænmetisætur, áhugamenn og velunnara, og stuðla að auknum tengslum og kynnum grænmetisæta.
  • Standa fyrir virkri fræðslu og upplýsingagjöf til grænmetisæta og annarra með uppbyggingu vefsíðu, opnum viðburðum, útgáfu fræðsluefnis, fyrirlestrum, kynningu í fjölmiðlum, í skólum, á vinnustöðum o.fl.
  • Gefa út hnitmiðað fræðsluefni fyrir matvælaframleiðendur, veitingastaði, matreiðslumenn o.fl. um þjónustu við grænmetisætur, og koma því markvisst á framfæri.
  • Stunda virka hagsmunagæslu og aðhald t.d. með hvatningu eða jafnvel þrýstingi á framleiðendur, innflytjendur og verslanir, með fyrirspurnum og greinargerðum til hins opinbera, með álitsgjöf varðandi lagafrumvörp og reglugerðir, með fréttatilkynningum til fjölmiðla um brýn hagsmunamál o.m.fl.
  • Finna leiðir til að aðstoða fólk við að gerast grænmetisætur, t.d. með því að búa til aðlögunarkerfi eða leiðbeiningar um fyrstu skrefin, með hvatningarfundum, fræðsluefni og öðrum leiðum.
  • Leita leiða til að bæta og auka grænmetis- og veganmerkingar neysluvara og matseðla og athuga jafnframt forsendur þess að gerast vottunaraðili á Ísland.
  • Félagið veiti athygli á því og viðurkenni það sem vel er gert sem samræmist markmiðum félagsins.

Kjörinn formaður samtakanna er Sigvaldi Ástríðarson en ásamt honum sitja í stjórn Sigurbaldur P. Frímannsson, gjaldkeri, Elísa Guðjónsdóttir, ritari, Helga María Ragnarsdóttir meðstjórnandi og formaður hagsmunagæsluhóps og Sæunn I. Marinósdóttir meðstjórnandi og formaður fræðslu- og fjölmiðlahóps.

Samtökin má finna á Facebook: https://www.facebook.com/Graenmetisaetur og þar verður tilkynnt um nýja vefsíðu samtakanna á næstu vikum.

Nánari upplýsingar veitir Sigvaldi Ástríðarson í síma 696-5444 eða á valli@graenmetisaetur.org

Birt:
11. maí 2013
Tilvitnun:
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir „Samtök grænmetisæta stofnuð“, Náttúran.is: 11. maí 2013 URL: http://nature.is/d/2013/05/11/samtok-graenmetisaeta-stofnud/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: