Stýrihópur skilaði í dag Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra og Svandísi Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, riti sem inniheldur úttekt á loftgæðum og lýðheilsu þeim tengdum. Efnt verður til málþings í næstu viku til að fylgja ritinu eftir.

Loftmengun  er fylgifiskur aukins mannfjölda og þéttbýlismyndunar á jörðinni og er hættuleg heilsu og lífsgæðum, einkum þeirra sem þjást af  sjúkdómum í öndunarfærum eða hjarta og æðum. Loftmengun dregur úr lífslíkum manna og eru börn sérstaklega viðkvæm, því mengað loft getur valdið öndunarfærasjúkdómum hjá börnum og haft varanleg áhrif á lungnaþroska þeirra.

Í ritinu, sem ber heitið Hreint loft – betri heilsa, er fjallað um helstu mengunarvalda lofts bæði inni og úti á Íslandi, magn þeirra, áhrif þeirra á heilsu, vöktun og aðgerðir til að stemma stigu við skaðsemi þeirra. Einnig eru settar fram tillögur til úrbóta og mælt með umhverfis- og heilsuvísum sem nota má til að fylgjast með loftmengun af ýmsu tagi og áhrifum hennar á heilsu.  Þetta er fyrsta heildarúttekt á loftgæðum á Íslandi og hafa höfundar lagt áherslu á að safna öllum tiltækum upplýsingum þar að lútandi. Gerð er m.a. grein fyrir uppruna, eiginleikum og áhrifum loftborinna efna á heilsu. Rakin eru ákvæði laga og reglugerða og alþjóðlegra samninga sem Ísland á aðild að. Þar sem niðurstöður mælinga liggja fyrir eru þær bornar saman við heilsuverndarmörk eða önnur viðmið.

Heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn árið 2010 en starfið var undir formennsku umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Auk fulltrúa ráðuneytanna tveggja sátu í stýrihópnum fulltrúar Embættis landlæknis,  Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, SÍBS og Umhverfisstofnunar.

Efnt verður til málþings miðvikudaginn 24. apríl, í aðdraganda dags umhverfisins, til að fylgja ritinu úr hlaði. Á málþinginu verður fjallað um áhrif loftgæða á heilsufar, loftgæði innandyra sem utan og hvað er til úrbóta. Í lok málþingsins verður pallborð þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum fundargesta. Málþingið verður haldið á Nauthóli í Öskjuhlíð milli kl. 10 og 12 og er öllum opið svo lengi sem húsrúm leyfir. Nánar má lesa um dagskrá málþingsins hér á vef ráðuneytisins.

Hreint loft – betri heilsa. Umfjöllun um loftgæði og heilsufar á Íslandi ásamt tillögum til úrbóta. Smella hér til að sækja.

Dagskrá málþingsins Hreint loft - betri heilda um loftgæði og lýðheilsu. Smella til að skoða dagskrána.

Grafík: Mengun í Reykjavík, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
16. apríl 2013
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Úttekt á loftgæðum og lýðheilsu“, Náttúran.is: 16. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/16/uttekt-loftgaedum-og-lydheilsu/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: