Björt Ólafsdóttir tók við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra á ríkisráðsfundi í dag, miðvikudaginn 11. janúar 2017. Fráfarandi ráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, afhenti henni lyklana að ráðuneytinu síðdegis.

Björt var kosin alþingismaður fyrir Bjarta framtíð í Reykjavíkurkjördæmi norður árið 2013.

Sigrún Magnúsdóttir, fráfarandi ráðherra, afhenti Björtu Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra lyklana að ráðuneytinu. Lyklakippan skartar Djúpalónsperlu og leysir af hólmi lyklakippuna sem Össur Skarphéðinsson afhenti Guðmundi Bjarnasyni árið 1995 og var með áfastri rjúpnakló.Hún er fædd 2. mars 1983. Eiginmaður hennar er Birgir Viðarsson verkfræðingur og eiga þau þrjú börn. Björt lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2003, BA-prófi í sálfræði og kynjafræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og M.Sc.-próf í mannauðsstjórnun frá Háskólanum í Lundi árið 2008.

Björt hefur m.a. starfað sem meðferðarfulltrúi við Meðferðarheimilið Torfastöðum, stuðningsfulltrúi og verkefnastjóri á geðdeildum Landspítala og við viðskiptaþróun og mannauðsmál á ráðgjafar- og þjónustumiðstöðinni Vinun. Hún starfaði sem mannauðs- og stjórnunarráðgjafi hjá Capacent 2011 – 2013 og var formaður Geðhjálpar á sama tímabili.

Stefnuyfirlýsingríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar

Birt:
12. janúar 2017
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Björt Ólafsdóttir tekur við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra“, Náttúran.is: 12. janúar 2017 URL: http://nature.is/d/2017/01/12/bjort-olafsdottir-tekur-vid-embaetti-umhverfis-og-/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: