Hinn árlegi Urriðadans í Öxará verður laugardaginn næstkomandi 15. október en þá mun Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um Þingvallaurriðann.

Kynningin hefst klukkan  kl. 14.00 og fer fram á bökkum Öxarár.
Gönguferðin hefst við bílastæðið þar sem Valhöll stóð. Síðan er gengið með ánni upp undir Drekkingarhyl þar sem risaurriðar og aðrir minni verða skoðaðir og fjallað um lífshætti þeirra.

Gert er ráð fyrir því að kynningin taki um eina og hálfa klukkustund og fá gestir tækifæri til að sjá risaurriðann í návígi og fræðast um þennan stórhöfðingja Þingvallavatns sem á hverju hausti gengur upp Öxará til hrygningar.


Birt:
13. október 2016
Tilvitnun:
Jóhannes Sturlaugsson „Urriðadans í Öxará “, Náttúran.is: 13. október 2016 URL: http://nature.is/d/2016/10/13/urridadans-i-oxara/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: