Fuglaskoðun við ElliðavatnSkógræktarfélag Reykjavíkur og Fuglavernd standa fyrir fuglaskoðun í Heiðmörk mánudaginn 23. maí. Lagt verður af stað stundvíslega klukkan 17:30 frá Elliðavatnsbænum og genginn hringur í nágrenninu.

Skoða á ríkulegt fuglalíf við Elliðavatn og í skógarjaðrinum. Hallgrímur Gunnarsson mun leiða gönguna og mun hún taka um klukkutíma.

Allir eru velkomnir. Munið að taka sjónaukann og jafnvel fuglabókina með og vera vel klædd.


Birt:
20. maí 2016
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Reykjavíkur „Fuglaskoðun við Elliðavatn mánudaginn 23. maí“, Náttúran.is: 20. maí 2016 URL: http://nature.is/d/2016/05/20/fuglaskodun-vid-ellidavatn-manudaginn-23-mai/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: