Verkefnisstjórn rammaáætlunar hefur lagt fram drög að lokaskýrslu 3ja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar. Í skýrslunni er gerð tillaga um flokkun 25 virkjunarkosta og svæða.

Verkefnisstjórn leggur til að eftirfarandi kostir fari í orkunýtingarflokk:  Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun, Austurengjar, Hverahlíð II, Þverárdalur og Blöndulundur.

Í verndarflokk fari fjögur svæði með eftirtöldum virkjunarkostum: Héraðsvötn (Villinganesvirkjun, Skatastaðavirkjanir C og D), Skjálfandafljót (Fljótshnúksvirkjun og Hrafnabjargavirkjanir A, B og C), Skaftá (Búlandsvirkjun) og Þjórsá vestur (Kjalölduveita).

Í biðflokk fari tveir virkjunarkostir í Hólmsá (við Atley og án miðlunar), Búðartunguvirkjun, Hagavatnsvirkjun, Stóra-Laxá, Trölladyngja, Innstidalur, Hágönguvirkjun, Fremrinámar og Búrfellslundur.

Ekki lágu fyrir nægileg gögn til að meta Austurgilsvirkjun á Vestfjörðum og fer sá kostur því einnig í biðflokk.

Ítarlegri upplýsingar og greinargerðir faghópa má finna í skýrslu verkefnisstjórnar.

Birt:
31. mars 2016
Höfundur:
Rammaáætlun
Tilvitnun:
Rammaáætlun „Rammaáætlun birtir drög að flokkun virkjanakosta“, Náttúran.is: 31. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/31/rammaaaetlun-birtir-drog-ad-flokkun-virkjanakosta/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: