Mosi í Þjórsárverum. Ljósm. Guðrún TryggvadóttirlStjórn Landverndar skorar á umhverfis- og auðlindaráðherra að tryggja fjármagn til friðlýsinga svæða í verndarflokki núgildandi virkjana- og verndaráætlunar (rammaáætlunar) sem samþykkt var á Alþingi í janúar 2013. Þrátt fyrir að rúm tvö og hálft ár séu nú liðin frá samþykktinni hefur ekki eitt einasta svæði í verndarflokki  enn verið friðlýst. Landvernd bendir á að samkvæmt lögum um áætlunina þá ber stjórnvöldum þegar í stað að hefja undirbúning að friðlýsingu svæða sem lenda í verndarflokki eftir að ætlunin hefur verið samþykkt á Alþingi.

Umhverfisstofnun sinnir friðlýsingum. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014 var fellt niður framlag til stofnunarinnar til friðlýsinga svæða í verndarflokknum. Ekkert frekara framlag hefur borist stofnuninni á kjörtímabilinu til þessara verka og engar breytingar á því boðaðar í nýframkomnu fjárlagafrumvarpi. Að mati Landverndar verða stjórnvöld að standa við skuldbindingar sínar þegar kemur að friðlýsingu svæða í virkjana- og verndaráætlun. Stjórn Landverndar skorar á ráðherra og alþingismenn að auka fjárframlög til friðlýsinga í verndarflokki áætlunarinnar svo framfylgja megi lögum og skapa meiri sátt um virkjanamál á Íslandi.

Stjórn Landverndar fagnar jafnframt því að umhverfis- og auðlindaráðherra ætli ekki að leggja fram breytingar á virkjana- og verndaráætlun á yfirstandandi þingi, heldur leyfa faghópum og verkefnisstjórn áætlunarinnar að vinna í friði. Stjórn Landverndar hvetur þingmenn til að fylgja fordæmi ráðherra.

Birt:
16. september 2015
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Fjársvelti ráðherra til friðlýsinga í rammaáætlun verður að hætta“, Náttúran.is: 16. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/16/fjarsvelti-radherra-til-fridlysinga-i-rammaaaetlun/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: