Göngustígur í Kerlingafjöllum. Ljósm. Guðrún TryggvadóttirÍslensk náttúra hefur lagt grunninn að öflugri ferðaþjónustu, sem nú skapar meiri gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið en nokkur önnur atvinnugrein. Vöxtur greinarinnar hefur skapað mörg tækifæri, en einnig áskoranir vegna mikillar ásóknar ferðafólks á viðkvæm náttúrusvæði. Til að tryggja að íslensk náttúra og öflug ferðaþjónusta geti blómstrað samtímis hefur ríkisstjórnin samþykkt að verja í sumar 850 milljónum króna til brýnna uppbyggingar- og verndaraðgerða á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón ríkisins.

Ráðist verður í 104 verkefni á 51 stað á landinu, auk þess sem viðbótarfé verður varið til aukinnar landvörslu um allt land. Mest verður framkvæmt í Skaftafelli og á Þingvöllum, við Geysi, í Dimmuborgum, á miðhálendinu, við Gullfoss, Dyrhólaey, Dynjanda, Stöng í Þjórsárdal og Dettifoss. Verkefnin eru af ýmsum toga en megináhersla er lögð á framkvæmdir vegna göngustíga, útsýnispalla, bílastæða og salernisaðstöðu. 

Ítarlegt yfirlit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir má sjá hér.

Fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun fyrir þetta ár var unnin í samstarfi forsætisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. Kallað var eftir tillögum þeirra stofnana sem hafa umsjón með umræddum svæðum og í kjölfarið var verkefnum forgangsraðað í samræmi við faglegt mat á því hver þörfin væri. Fjármagnið mun renna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sem mun annast umsýslu og eftirlit með verkefnum sumarsins.

Framtíðarsýn sem tekur mið af verndun náttúrunnar og mikilvægi atvinnugreinarinnar
Á næstu árum verður ráðist í enn frekari umbætur á vinsælum ferðamannastöðum í eigu og umsjón ríkisins með það að markmiði að bæta þar skipulag og aðgengi þannig að staðirnir þoli vel þann fjölda sem þangað sækja. Hafin er vinna við mótun framtíðarstefnu um vernd náttúrunnar í tengslum við ferðaþjónustu í landinu og er þar horft til fjölmargra þátta. Unnin verður landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn, í samræmi við frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi, en þar er gert ráð fyrir víðtæku samstarfi stjórnvalda og hagsmunaaðila. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra leiðir svo vinnu við heildarstefnumótun og framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustuna.

Fjármögnun verkefnanna er háð samþykki Alþingis, en óskað verður eftir fjárheimildum í tillögum til fjáraukalaga 2015. Fjárlaganefnd Alþingis hefur verið kynnt málið, í samræmi við 33. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins.

Birt:
26. maí 2015
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Ríkisstjórnin úthlutar 850 milljónum til brýnna verkefna á ferðamannastöðum “, Náttúran.is: 26. maí 2015 URL: http://nature.is/d/2015/05/26/rikisstjornin-uthlutar-850-milljonum-til-brynna-ve/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: