Breiðdalshreppur og Náttúran.is hafa gert með sér samkomulag um þróun Endurvinnslukorts fyrir sveitarfélagið og er það þriðja Endurvinnslukort sveitarfélaga sem hleypt er af stokkunum og annað á Austfjörðum. Endurvinnslukort Breiðdalshrepps er nú aðgengilegt í tengli t.v. á breiddalur.is.

Endurvinnslukortið fyrir allt landið hefur að geyma gríðarlegt magn upplýsinga um endurvinnslu og móttökustaði á öllu landinu en þau sveitarfélög sem ganga til samstarfs um frekari þróun fá fjölda nýrra þjónustuliða. Öllum sveitarfélögum landsins býðst að gerast samstarfsaðilar að verkefninu og veita íbúum sínum þannig aukna þjónustu með eigin Endurvinnslukorti á heimasíðu sveitarfélagsins.

Takmarkið er að öll sveitarfélög á landinu sjái sér hag í því að taka þátt í samstarfinu þannig að allir, bæði íbúar og ferðamenn, innlendir og erlendir, hafi aðgang að ítarlegum og samræmdum upplýsingum, hvar svo sem þeir eru staddir á landinu hverju sinni.

Endurvinnslukort Breiðdalshrepps.

Endurvinnslukort sveitarfélaganna fela í sér eftirfarandi þjónustu:

  • Skilgreiningu á endurvinnslumöguleikum og sorpþjónusta svæðisins s.s.; tunnum, lúgum, mótttökustöðvum og endurvinnsluflokkum.
  • Sorphirðudagatal tengt heimilisfangi persónu eða fyrirtæki sem síðan tengist þjónustusvæði með leiðarbestun að næstu móttökustöð og dagréttum veðurviðvörunum á leiðum.
  • Áskrift að iCal og Google dagatölum Endurvinnslukortsins með tilkynningum og viðvörunum til að tengja í síma og tölvur.
  • Spurt og svarað samskiptakerfi.
  • Þjónustusíma
  • Tengingu við ítarefni á Endurvinnslukortinu yfir allt landið.
  • Efni á íslensku og ensku.

Endurvinnslukortið mun halda áfram að vera í stöðugri þróun og fylgja öllum breytingum eftir. Leiðarvísun og Spurt og svarað samskiptakerfi koma inn á síðari stigum.

Hafið samband við Guðrúnu Tryggvadóttur í síma 863 5490 eða gunna@nature.is til að fá nánari upplýsingar um Endurvinnslukort sveitarfélaganna.

Birt:
10. mars 2015
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Endurvinnslukort Breiðdalshrepps komið í loftið“, Náttúran.is: 10. mars 2015 URL: http://nature.is/d/2015/04/10/breiddalshreppur-kominnn-med-endurvinnslukort/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 10. apríl 2015

Skilaboð: