Á Geyssvæðinu. Ljósm. Árni Tryggvason.Yfirlýsing frá Landvernd, Ferðafélagi Íslands, Ferðaklúbbnum 4x4, Samtökum útivistarfélaga (SAMÚT) og Útivist

Undirrituð samtök taka undir að víða þurfi að efla innviði og þjónustu til að forða ferðamannastöðum og náttúruperlum frá skemmdum og ágangi. Í þeim tilgangi er ásættanlegt að innheimta gjald af ferðamönnum sem renni til uppbyggingar og reksturs á slíkum stöðum, þ.m.t. til fræðslu, landvörslu og öryggismála. Athuga ber þó að bætt aðgengi og uppbygging á ekki við á öllum stöðum og gildir það sérstaklega þar sem auknir innviðir myndu skerða víðerni, ásýnd náttúrulegra svæða, eða upplifun ferðamanna af lítt snortinni og ómanngerðri náttúru.

Samtökin telja að náttúrupassi og gjald inn á einstaka staði vegi stórlega að almannarétti um frjálsa för fólks um óræktað land og leggjast gegn áformum sem stangast á við þennan mikilvæga rétt fólks til að njóta landsins.

Samtökin telja að fara beri leiðir sem ekki brjóta á almannaréttinum, t.d. blandaða leið hóflegs komu- eða brottfarargjalds og breytinga á gistináttagjaldi og/eða virðisaukaskatti. Það er skýr krafa samtakanna að ríkisstjórnin falli frá tillögu um náttúrupassa sem ráðherra ferðamála mælir fyrir á Alþingi í dag.

Landvernd, Ferðafélagi Íslands, Ferðaklúbbnum 4x4, Samtökum útivistarfélaga (SAMÚT) og Útivist.

Birt:
29. janúar 2015
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Vegið stórlega að almannarétti um frjálsa för fólks um landið“, Náttúran.is: 29. janúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/01/29/vegid-storlega-ad-almannaretti-um-frjalsa-folks-um/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: