Viðey í ÞjórsáRíkisstjórnin samþykkti í gær að tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár verði flutt úr biðflokki rammaáætlunar í orkunýtingarflokk. Er þetta endurflutningur tillögu frá í vor en hún er í samræmi við niðurstöðu verkefnisstjórnar 3. áfanga áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða (rammaáætlunar).

Í greinargerð verkefnisstjórnar frá mars kemur fram að niðurstaðan sé fengin að teknu tilliti til fyrirliggjandi upplýsinga og með hliðsjón af mati faghóps um laxfiska í Þjórsá. Er þar m.a. vísað í skýrslu sérfræðihóps um laxfiska í Þjórsá og nýlegar upplýsingar frá Landsvirkjun sem faghópur fór yfir. Var það niðurstaða faghópsins að óvissa varðandi áhrif Hvammsvirkjunar á laxfiska hefði minnkað nægjanlega til að réttlætanlegt væri að færa virkjunina í nýtingarflokk.

 Ekki er á þessu stigi gerð tillaga um breytingu á röðun annarra virkjunarkosta sem núgildandi rammaáætlun tekur til.

Á vef rammaáætlunar  www.rammaaaetlun.is  er að finna greinargerð verkefnisstjórnar ásamt þeim umsögnum sem bárust í umsagnarferlinu.

Birt:
8. október 2014
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Þingsályktunartillaga um rammaáætlun til Alþingis“, Náttúran.is: 8. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/08/thingsalyktunartillaga-um-rammaaaetlun-til-althing/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: