Í tilefni af lokum verkefnisins TASTE verður haldin opin málstofa þann 16. september á Matís um nýtingu á sjávarþörungum til bragðaukningar og saltminnkunar í matvælaframleiðslu.

Á málstofunni verða haldnir fyrirlestrar um sjávarþörunga á Íslandi og nýtingu þeirra, sjávarþörungiðnaðinn í Frakklandi, næringargildi þörunga og notkun þörunga í matvæli og aðrar neytendavörur. Málstofan fer fram á ensku. 

Dagskrá málstofunnar.

Skráning á málstofuna: vinsamlegast sendið póst á rosa()matis.is.

Nánari upplýsingar um TASTE verkefnið má finna á vefsíðu verkefnisins, http://tasteproject.net/, á heimasíðu Matís og með því að hafa samband við Rósu Jónsdóttur og Þóru Valsdóttur hjá Matís.


Birt:
11. september 2014
Uppruni:
Matís ohf
Tilvitnun:
Steinar B. Aðalbjörnsson „TASTE – nýting á matþörungum til bragðaukningar og saltminnkunar í matvælaframleiðslu“, Náttúran.is: 11. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/11/taste-nyting-matthorungum-til-bragdaukningar-og-sa/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: