Merki Matarsóunarverkefnisins.Dagskrá hátíðarinnar Saman gegn matarsóun í  Hörðu laugardaginn 6. september.

Kynnar verða Guðfinnur Sigurvinsson og Guðbjörg Gissurardóttir

  • 13:00-13:10   Opnun hátíðarinnar og kynning á dagskrá
  • 13:10-13:25   Opnunarræða borgarstjóra Reykjavíkur – Dagur B. Eggertsson
  • 13:25-13:30   Kynning á skipuleggjendum hátíðarinnar: Landvernd. Rannveig Magnúsdóttir, verkefnastjóri Saman gegn matarsóun, Kvenfélagasamband Íslands. Una María Óskarsdóttir, forseti KÍ, Vakandi. Rakel Garðarsdóttir stofnandi Vakandi
  • 14:00-14:15    Selina Juul, stofnandi ,,Stop spild af mad” hreyfingarinnar í Danmörku
  • 15:00-15:10    Matvælastofnun. Jónína Stefánsdóttir
  • 15:10-15:20    Matís. Hrönn Ólína Jörundsdóttir
  • 15:20-15:30    Landspítalinn. Heiða Björg Hilmisdóttir
  • 16:00-16:15    Tristram Stuart, breskur rithöfundur og talsmaður gegn matarsóun
  • 16:15-16:25    Crowbar – insect powered energy. Stefán Atli Thoroddsen
  • 17:00-17:15    Samhjálp. Vilhjálmur Svan
  • 17:15-17:30    Borgarbýli, Seljagarðar. Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir

 

Í Silfurbergi og á Eyri verða eftirfarandi aðilar með kynningu á starfsemi sinni: Ankra, Bónus, Eigenda og ræktendafélag Landnámshænsna, IKEA, Í boði náttúrunnar, Íslenskur matur og matarmenning, Kvenfélagasamband Íslands, Landvernd, Litli Bóndabærinn, Matarbýtti, Náttúran.is, Neytendasamtökin, Pokalausi dagurinn, Samhjálp, Seljagarður-Borgarbýli, Slow Food Reykjavík, Uppskeran, Vakandi og Velbú.

Þórunn Clausen leikkona verður með leiklestur úr bókunum um Smjattpattana og ókeypis andlitsmálning verður í boði fyrir börnin.

Frá kl 13:00 verður súpa í boði Kolabrautarinnar og Sölufélags garðyrkjumanna borin fram á Eyri.

DJ Sóley sér um að spila ljúfa tóna á milli atriða.

Verið hjartanlega velkomin!

Birt:
5. september 2014
Tilvitnun:
Rannveig Magnúsdóttir „Saman gegn matarsóun - Dagskrá hátiðarinnar“, Náttúran.is: 5. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/05/saman-gegn-matarsoun-dagskra-hatidarinnar/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 6. september 2014

Skilaboð: