Holtasóleyjar.Íslensk náttúra hefur gegnt lykilhlutverki í efnahagsbata landsins, bæði vegna orkuauðlinda hennar sem og aðdráttarafls fyrir erlenda ferðamenn. Íslendingar njóta mikilla lífsgæða og hreins umhverfis sem býður upp á framúrskarandi vatnsgæði, litla loftmengun og mikið aðgengi að óspilltri náttúru. Þetta er meðal meginniðurstaðna heildarúttektar Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) á umhverfismálum á Íslandi árin 2001 - 2013, en úttektarskýrslan var kynnt í dag. Sjá frétt.

Í skýrslunni er bent á styrkleika og áskoranir í umhverfismálum Íslendinga. Meðal annars er það talið landinu til tekna að mótuð hafi verið skýr stefna varðandi stjórnun umhverfismála og sjálfbæra þróun. Íslendingar hafi nálgast umhverfisstjórnun með nýstárlegum hætti, svo sem í fiskveiðistjórnun og nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda. Gildi fyrir vatns- og loftmengun séu í sögulegu lágmarki og Ísland sé með hæsta hlutfall endurnýjanlegrar orku af öllum þjóðum OECD. Þá hafi landið að geyma einstaka náttúru með óspillt víðerni, hveri, hraunbreiður og jökla sem margir óska eftir því að sjá og upplifa.

Helstu áskoranir landsins eru m.a. taldar felast í veikri efnahagsstöðu smærri sveitarfélaga sem aftri þeim frá því að fylgja eftir öflugri umhverfisstefnu. Þá sé iðnaður í landinu einsleitur og reiði sig verulega á ódýra, hreina orku vegna þess hversu orkufrekur hann er. Landeyðing sé vandi, m.a. vegna ofbeitar, sem styrkjakerfi í landbúnaði ýti undir og einnig auki sívaxandi ferðamannastraumur álag á viðkvæma náttúru til muna. Þá sé hætta sé á að ágreiningur verði um landnýtingu vegna ólíkra hagsmuna þeirra sem vilja annars vegar nýta náttúruna til orkuframleiðslu og hins vegar þeirra sem vilja auka náttúrutengda ferðaþjónustu.

Í skýrslunni er sjónum sérstaklega beint að annars vegar að náttúru og ferðaþjónustu og hins vegar náttúru og orku- eða virkjanamálum. Er á sama hátt farið yfir tækifæri og áskoranir sem þessir málaflokkar fela í sér og lagðar fram tillögur að næstu skrefum hvað þessi málefni varðar.

Þetta er í þriðja sinn sem OECD gerir slíka úttekt á umhverfismálum hér á landi en að jafnaði er um áratugur milli umhverfisúttekta stofnunarinnar á aðildarríkjum sínum.  Það voru Simon Upton, yfirmaður umhverfissviðs OECD (Environment Directorate) og Brendan Gillespie, forstöðumaður umhverfisúttekta (Environmental Performance and Information Division) sem afhentu skýrsluna formlega á kynningarfundi á Hótel Natura í morgun og fóru yfir helstu atriði hennar.

Úttekt OECD á frammistöðu Íslands í umhverfismálum - heildarskýrsla.

Útdráttur með yfirliti yfir helstu atriði og niðurstöður skýrslunnar.

Sjá viðtal við Simon Upton í Kastljósi þ. 4.9.2014.

Ljósmynd: Holtasóleyjar, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
4. september 2014
Tilvitnun:
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir „Heildarúttekt OECD á umhverfismálum Íslendinga kynnt“, Náttúran.is: 4. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/04/heildaruttekt-oecd-umhverfismalum-islendinga-kynnt/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: