Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja að lítið eldgos sé hafið undir sporði Dyngjujökuls. Þar sem atburður er hafinn hefur Ríkislögreglustjóri ákveðið að færa hættustig upp á neyðarstig og Veðurstofa Íslands hefur fært litakóða vegna flugs upp á rautt, sem þýðir að flug er nú bannað yfir svæðinu.

Talið er að um lítinn atburð sé að ræða enn sem komið er og vegna þrýstings frá jöklinum er óljóst hvort gosið muni eingöngu verða undir jökli eða koma upp úr honum.

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-Sif er komin að jöklinum með vísindamenn innanborðs og er ekki að sjá gosmökk yfir jöklinum. Engar vísbendingar eru um bráðnun frá jöklinum eða hlaup vegna goss.

Á þessu stigi miðast viðbúnaður við lítinn atburð. Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu. Að svo stöddu er ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit. Fólk á þessu svæði er hvatt til að fylgjast grannt með fréttum og vera í stöðugu farsímasambandi.

Birt:
23. ágúst 2014
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Lítið gos hafið í Dyngjujökli“, Náttúran.is: 23. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/23/fra-samhaefingarstjorn-v-bardarbungu-1431/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: