Merki GlóViðskiptablaðið greinir frá eftirfarandi:

Skiptastjóri hefur selt alla veitingastaðina úr þrotabúi Lifandi markaðar.

„Við ætlum að Glóa þetta upp,“ segir Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri veitingastaðarins Gló, sem hefur keypt þá tvo veitingastaði sem út af í þrotabúi Lifandi markaðar. Veitingastaðirnir eru í Fákafeni í Reykjavík og í Hæðasmára í Kópavogi. Kaupin voru innsigluð nú í hádeginu. Elías segir stefnt á að ráða hluta starfsfólks Lifandi markaðar aftur. Töluverðar breytingar verða gerðar á báðum stöðunum. Stefnt er á að opna verslunina í Fákafeni í lok ágúst eða í september en veitingastaðinn í Hæðasmára í september eða í október. Fyrir rekur Gló þrjá veitingastaði, tvo í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Með kaupunum nú bætast tveir við.

Lifandi markaður var áður í eigu sjóðsins Auður I sem er í rekstri Virðingar. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í byrjun mánaðar. Skiptastjóri seldi veitingastaðinn og verslunina í Borgartúni í vikubyrjun og hefur hann nú selt hina tvo.
Eldhúsið flutt í Kópavoginn

Elías segir markmiðið að opna verslun Gló í Fákafeninu þar sem verði boðið upp á ýmsar nýjungar. Þá verður þar hægt að kaupa mat og fara með. Eldhúsið verður flutt úr Engjateig í Kópavoginn og verður þar annar veitingastaður opnaður. Í eldhúsinu í Hæðarsmára verða grunnar í rétti eldaðir og undirbúnir og fluttir á hina veitingastaði Gló en þar eru jafnframt eldhús en minni í sniðum en verður í Hæðasmára.

Elías segir eldhúsið í Engjateig löngu sprungið og sé það ástæðan fyrir flutningnum. Þótt eldað verði í Kópavoginum þá sé tiltölulega mikil eldamennska á hverjum hinna veitingastaðanna.

Birt:
18. júlí 2014
Höfundur:
Viðskiptablaðið
Tilvitnun:
Viðskiptablaðið „Gló kaupir Lifandi markað í Fákafeni og í Kópavogi“, Náttúran.is: 18. júlí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/07/18/glo-kaupir-lifandi-markad-i-fakafeni-og-i-kopavogi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: