Fyrir skömmu undirrituðu Landvernd og Farfuglar samstarfssamning sem felur í sér að gestir Farfuglaheimilanna geta lagt fé í sjóð sem síðan verður notað til að styrkja tvo langtímaverkefni sem Landvernd vinnur að. Verkefin sem styrkt verða eru jarðhitaverkefni Landverndar og fræðslu- og aðgerðaverkefni í landgræðslu með skólabörnum í þremur grænfánaskólum á Suðurlandi. Auk þess munu samtökin þróa saman verkefni um landgræðslu á erfiðum og illa förnum rofsvæðum.

Með samkomulaginu gefa Farfuglar gestum sínum tækifæri til að taka þátt í metnaðarfullu umhverfsstarfi samtakanna á táknrænan hátt.

Ljósmynd: Guðmundur Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar og Emilia Prodea umhverfis- og gæðastjóri Farfugla handsala samninginn.

Nánari upplýsingar um verkefnin er að finna á hér.

Birt:
4. júní 2014
Höfundur:
Markús Einarsson
Tilvitnun:
Markús Einarsson „Farfuglar og Landvernd í samstarf um stuðning til náttúruverndar“, Náttúran.is: 4. júní 2014 URL: http://nature.is/d/2014/06/04/farfuglar-og-landvernd-i-samstar-um-studning-til-n/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: