Máttur matarins er yfirskrift málþings Náttúrulækningafélags Íslands sem haldið verður á Hótel Natura á morgun.

Á málþinginu verður fjallað um hvað í raun gerist þegar við borðum óhollan og hollan mat. Hvað gerir til dæmis íþróttafólk sem vill ná langt í sinni íþrótt? Ragna Ingólfsdóttir, fyrrverandi atvinnumaður í badminton og ólympíufari og Geir Gunnar Markússon, næringafræðingur á heilsustofnun NLFÍ og fundarstjóri á málþinginu komu í Síðdegisútvarpið á Rás 1 í dag.

Hlusta á viðtalið í Síðdegisútvarpinu.

Ljósmynd: Ragna Ingólfsdóttir, mynd fengin að láni á visir.is.


Birt:
7. apríl 2014
Höfundur:
Ríkisútvarpið
Uppruni:
Ríkisútvarpið
Tilvitnun:
Ríkisútvarpið „Máttur matarins - gott mataræði, betri heilsa, meiri lífsgæði“, Náttúran.is: 7. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/07/mattur-matarins-gott-mataraedi-betri-heilsa-meiri-/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: