Náttúrupassi eða gjald á einstaka staði: Vegið stórlega að almannarétti um frjálsa för fólks um landið

Í yfirlýsingu frá Landvernd, Ferðafélagi Íslands, Ferðaklúbbnum 4x4, Samtökum útivistarfélaga (SAMÚT) og Útivist segir:

Undirrituð samtök taka undir að víða þurfi að efla innviði og þjónustu til að forða ferðamannastöðum og náttúruperlum frá skemmdum og ágangi. Í þeim tilgangi er ásættanlegt að innheimta gjald af ferðamönnum sem renni til uppbyggingar og reksturs á slíkum stöðum, þ.m.t. til fræðslu, landvörslu og öryggismála.

Samtökin telja hinsvegar að náttúrupassi og gjald inn á einstaka staði vegi stórlega að almannarétti um frjálsa för fólks um óræktað land. Samtökin vara sérstaklega við hugmyndum um að girða af náttúruperlur í þeim tilgangi að taka gjald af svæðum og hefta þannig för almennings. Samtökin leggjast gegn áformum sem stangast á við þennan mikilvæga rétt fólks til að njóta landsins.

Í samráðshópi um náttúrupassa á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafa útfærslur annarra hugmynda en náttúrupassans ekki fengist ræddar. Samtökin telja að fara beri leiðir sem ekki brjóta á almannaréttinum, t.d. blandaða leið hóflegs komu- eða brottfarargjalds og breytinga á gistináttagjaldi og/eða virðisaukaskatti. Það er skýr krafa samtakanna að þessar leiðir verði útfærðar í samráðshópnum á sama tíma og náttúrupassinn og síðan verði endanlegar ákvarðanir teknar um leiðir til gjaldtöku ferðamanna.

Samtökin hafa fullan skilning á því að málið er brýnt en hvetja ráðherra, landeigendur og aðila í ferðaþjónustunni að sameinast um að tryggja að sú mikilvæga stefnumótun sem nú er í gangi tryggi vernd almannaréttarins og að litið verði gaumgæfilega á aðferðir sem tryggja það.

Landvernd, Ferðafélagi Íslands, Ferðaklúbbnum 4x4, Samtökum útivistarfélaga (SAMÚT) og Útivist.

Ljósmynd: Öskuhólshver.

Birt:
26. febrúar 2014
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Mótmæla náttúrupassa og gjaldtöku“, Náttúran.is: 26. febrúar 2014 URL: http://nature.is/d/2014/02/26/motmaela-natturupassa-og-gjaldtoku/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: