Náttúran heldur áfram að birta sáðalmanak og fyrstu hálfa ár ársins 2016 er þegar komið inn. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti hefur tekið saman efni í sáðalmanak Náttúrunnar. Smelltu hér til að skoða sáðalmanakið. 

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Sáðalmanak Náttúrunnar er sett þannig fram að þú sérð á tímalínu hvaða tímabil hentar best til að sá til, gróðursetja eða safna fræi hinna sex flokka; ávexti, blóm, blöð, rót, tré og ýmislegt. Einnig hvenær óhagstætt er að sá eða gróðursetja. Þú getur valið um að sjá einn dag, viku eða mánuð í senn. Með smelli á mynsturreitina sem tákna flokana: ávöxtur, blóm, blað, rót, tré, ýmislegt og óhagstætt, sérð þú nákvæmar tímasetningar, þ.e. frá klukkan hvað og til klukkan hvað tímabilið stendur auk ítarlegri textaupplýsinga eigi þeir við. Þú slekkur á þeim upplýsingum með því að smella aftur á reitinn.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

•    Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
•    Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
•    Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
•    Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáð í takt við sáðalmanakið, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir. 

Birt:
26. febrúar 2016
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak 2016“, Náttúran.is: 26. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2014/02/24/sadalmanak-2014/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 24. febrúar 2014
breytt: 26. febrúar 2016

Skilaboð: