Green Map® System er alþjóðlegt flokkunarkerfi til að auðvelda þér að taka þátt í því að skapa sjálfbært samfélag. Þú finnur grænni fyrirtæki, vörur, og þjónustu sem og menningarstarfsemi og náttúrufyrirbæri alls staðar á landinu. Athugið að sumir flokkar taka einnig til varhugaverðra fyrirbæra og svæða.

NÝTT! Grænt kort – Suður, sérstök app-útgáfa um Suðurland.

Grænkortakerfið byggir á þremur yfirflokkum sem standa fyrir hinar þrjár stoðir sjálfbærrar þróunar, þ.e.; Náttúru (grænu flokkarnir), Menningu (appelsínugulu flokkarnir) og Hagkerfi (bláu flokkarnir).

Þú velur þann flokk sem þú vilt skoða en flokkarnir opnast niður við smell. Þá sérð þú nöfn og táknmyndir hvers flokks. Með smelli á táknmynd sérð þú alla aðilana í flokknum birtast á kortinu. Hægt er að slökkva á flokki með því að smella aftur. Með smelli á táknmyndirnar á kortinu opnast nánari upplýsingar. Þú færð enn nákvæmari upplýsingar um hvern aðila fyrir sig með því að smella á nöfn þeirra á kortinu eða á listanum.

Hugsum hnattrænt, kortleggjum nærumhverfið!

Grænt kort – Ísland. Framleiðandi Náttúran er ehf. 2014. Green Map® er skrásett vörumerki Green Map System, Inc. Táknmyndir Græna kortsins © Green Map® System, Inc. 2014. Öll réttindi áskilin.

 

 

Birt:
12. febrúar 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Grænt kort – Ísland“, Náttúran.is: 12. febrúar 2014 URL: http://nature.is/d/2014/02/12/graent-kort-island/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 14. desember 2015

Skilaboð: