Náttúran birtir nú þriðja sáðalmanak ársins 2013. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

1.   apríl 00 – 24 blað
2.   apríl 00 – 02 blað, 03 – 24 ávextir
3.   apríl 00 – 04 óhagstætt, 04 – 24 ávextir
4.   apríl 00 – 05 ávextir, 06 – 24 rót
5.   apríl 00 – 24 rót
6.   apríl 00 – 05 rót, 06 – 24 blóm
7.   apríl 00 – 24 blóm
8.   apríl 00 – 02 blóm, 03 – 24 blað
9.   apríl 00 – 24 blað
10. apríl 00 – 24 blað
11. apríl 00 – 01 blað, 02 – 24 ávextir
12. apríl 00 – 08 ávextir, 08 – 16 óhagstætt, 16 – 24 ávextir
13. apríl 01 – 24 rót
14. apríl 00 – 24 rót
15. apríl 00 – 12 rót, 13 – 24 blóm
16. apríl 00 – 24 blóm
17. apríl 00 – 22 blóm
18. apríl 00 – 03 óhagstætt, 03 – 09 blóm, 10 – 24 blað
19. apríl 00 – 24 blað
20. apríl 00 – 03 blað, 04 – 24 ávextir
21. apríl 00 – 24 ávextir
22. apríl 00 – 19 ávextir, 20 – 24 rót
23. apríl 00 – 24 rót
24. apríl 00 – 08 rót, 09 – 19 ávextir, 20 – 24 rót
25. apríl 00 – 18 rót, 18 – 24 óhagstætt
26. apríl 00 – 01 rót, 02 – 10 og frá 17 – 24 blóm
27. apríl 00 – 06 blóm, 06 – 24 óhagstætt
28. apríl 00 – 07 óhagstætt, 07 – 24 blað
29. apríl 00 – 09 blað, 10 – 24 ávextir
30. apríl 00 – 05 ávextir og 10 – 24 ávextir.

Hagstæður tími til útplöntunar er dagana 15. til og með 28. apríl.
Sá tími er einnig hagstæður til að klippa tré og runna nema ef ætlað er að afklippurnar í græðlinga.

Sáðalmanak hvers dags birtist nú einnig á Viðburðardagatalinu hér til hægri á síðunni.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Eldhúsgarðurinn byrjar í huganum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
5. apríl 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak fyrir apríl 2013“, Náttúran.is: 5. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/30/sadalmanak-fyrir-april-2013/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 30. mars 2013
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: