Alþjóðlegi baráttudagur kvenna er haldinn hátíðlegur í dag. Víða um heim fagna konur deginum og minna á mikilvægi jafnréttis kynjanna og stöðu kvenna í hinum ýmsu menningarheimum. Hér á landi verður m.a. fundað á Grand Hótel í dag kl. 11:15 - 13:00 undir fyrirsögninni „Kynhlutverk og kynskiptur vinnumarkaður - ný kynslóð, nýjar hugmyndir?“ og Menningar- og friðarsamtök MFÍK heldur fund í Iðnó kl. 17:00.

Sjá nánar um hátíðahöld dagsins um víða veröld á Internationalwomensday.com.

Birt:
8. mars 2013
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Til hamingju með daginn stelpur“, Náttúran.is: 8. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/08/til-hamingju-med-daginn-stelpur/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: