Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2012.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins sitja Friðrik Dagur Arnarson formaður, skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra, Jóna Fanney Friðriksdóttir fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfismála,  Kristján Þórður Snæbjarnarson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og María Guðmundsdóttir fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 3. apríl n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

Sjá framsetningu Náttúrunar á handhöfum Kuðungsins á Grænum síðum.

Birt:
6. mars 2013
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2012“, Náttúran.is: 6. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/06/oskad-eftir-tilnefningum-til-kudungsins-2012/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: