Olís kynnti í dag fyrst íslenskra olíufyrirtækja díselolíu blandaða með VLO, eða vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu. Um er að ræða hreinna og umhverfisvænna díseleldsneyti en þekkst hefur og framleiðsluaðferðin gerir hana gjörólíka annarri lífdíselolíu. VLO virkar fullkomlega eins og önnur díselolía en hún mengar minna. Olís hóf í dag sölu á VLO díselolíunni og stígur með því enn eitt græna skrefið en félagið hefur um árabil unnið skipulega að umhverfis- og uppgræðslumálum hér á landi.

VLO er blönduð í díselolíu Olís sem hlutfall af seldu magni í samræmi við reglugerðir í Evrópu. Slík reglugerð hefur enn ekki litið dagsins ljós hér á landi en mun væntanlega gera það innan skamms. Þetta íblöndunarhlutfall skilar í heildina 5% minni koltvísýringsútblæstri díselbifreiða. Hægt er að nota 100% hreina VLO á díselvélar en með íblöndun vill Olís stuðla að því að gera VLO samkeppnisfæra í verði á eldsneytismarkaðnum. Íblöndunin hefur engin áhrif á lítraverð, eykur ekki eldsneytiseyðslu en dregur hins vegar úr koltvísýringsútblæstri og losun gróðurhúsalofttegunda.

Hægt er að nota VLO á allar venjulegar díselvélar án þess að breyta þeim eða endurstilla á nokkurn hátt. VLO er afar kuldaþolin sem kemur sér vel á norðlægum slóðum. VLO er með hærri cetan-tölu en önnur díselolía, brennur því betur, bruninn verður hreinni og fer þar af leiðandi betur með vél bílsins.

Mjög fjölbreytt hráefni

Vetnismeðhöndlun er nýstárleg aðferð við framleiðslu á lífeldsneyti fyrir díselvélar en hún er afrakstur öflugs vísinda- og þróunarstarfs hjá finnska olíufyrirtækinu Neste Oil. Við framleiðsluna er notað endurnýjanlegt lífeldsneyti, svo sem ýmiskonar jurtaolía og dýrafita, og vetni notað til að fjarlægja súrefni úr sameindum brennslufitu olíunnar. Þessi aðferð, þ.e. vetnismeðhöndlun lífrænnar olíu, hefur skilað hreinni og umhverfisvænni vöru sem er laus við þau vandamál sem fylgt hafa annarri lífdíselolíu, eins og botnfall, þránun og bakteríumyndun. Ekki hefur þótt ráðlegt að blanda lífdíselolíu nema u.þ.b. 5–7% út í venjulega díselolíu, en VLO má nota allt að 100% á allar díselvélar.

nVið framleiðslu á VLO er notast við afar fjölbreytt hráefni úr umhverfinu án þess að það bitni nokkuð á gæðum eldsneytisins, t.d. margar tegundir af jurtaolíu (sojabaunaolíu, repjuolíu, sólblómaolíu, pálmaolíu o.fl.) en einnig margvíslegan dýrafituúrgang frá veitingahúsum og sláturhúsum, sem annars yrði hent. VLO hefur verið notuð víða í Evrópu um nokkurra ára skeið með góðum árangri. Neste Oil hefur einnig haldið úti víðtækum prófunum á VLO í Finnlandi, Þýskalandi og Kanada undanfarin ár. Þessi olía hefur erlendis gengið undir nafninu HVO, Hydrotreated Vegetable Oil eða vetnismeðhöndluð jurtaolía.

Birt:
4. mars 2013
Tilvitnun:
Sigurður K. Pálsson „Olís kynnir umhverfisvænna díseleldsneyti“, Náttúran.is: 4. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/04/olis-kynnir-umhverfisvaenna-diseleldsneyti/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: