Ef þú hefur aðeins lítið pláss til umráða eða getur fengið smá pláss á svölum eða holað þér niður hjá vini eða kunningja gætir þú komið þér upp Eldhúsgarði í örlitlu útgáfunni. Góð stærð til að miða við er einn fermeter 1m2 en á einum fermeter má rækta ýmislegt og hafa gaman af. Ef reiturinn er ekki plægður fyrir getur þú skellt niður einföldum fjórhliða botnlausum kassa. Hann má gera úr mótatimbri eða bara einhverjum viðarafgöngum sem finnast víða. Hornin má festa saman með gúmmíbút, skósólum af ónýtum strigaskóm eða gömlum stígvélum. Heftibyssa eða nokkrar skrúfur hjálpa þér síðan við að festa heimatilbúnu „lamirnar“ á timbrið. Um að gera að kosta sem minnstu til og nota það sem til er. Auðvitað má einnig nota fínar lamir, skrúfa eða negla spýturnar saman.

Mynd 1. Grasflötur fundinn fyrir Eldhúsgarðinn litla! Rúmur fermeter dugar til, nauðsynlegt er þó að hafa pláss til að komast þægilega að kassanum á alla vegu.

Mynd 2. Eldhússgarðskassanum hefur verið fisjað saman úr fjórum eins metra löngum spýtum, fjórum gúmmípjötlum og sextán skrúfum
Mynd 3, Í botninn leggur þú síðan nokkur lög af dagblöðum, gras og illgresi vex ekki í gegnum dagblöðin og þau jarðgerast ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir 2-3 ár.
Mynd 4. Ofan á dablöðin skellir þú síðan mold, sæmilega góðri eða bætir slappa mold með hrossaskít, hænsnaskít, þaramjöli eða öðru góðum lífrænum áburði því Eldhúsgarðurinn á að sjálfsögðu að vera umhverfis- og mannvænn. Nú getur þú hafist handa við að sá því sem þú vilt í garðinn eða planta út forræktuðum plöntum. Ef þú byrjar strax er betra að skella plasti eða akríldúk yfir kassann því ennþá er ansi kalt á nóttunni. Ef þú hefur miklu meira pláss, tíma og setur markið á stærri garð, þá hinkrar þú við og fylgist með á næstu dögum, vikum og mánuðum!
 

Grafík: Eldhúsgarðskassinn, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.

Birt:
12. maí 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er“, Náttúran.is: 12. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2009/05/22/eldhusgarourinn-einfold-leio-til-ao-gera-ser-groou/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 22. maí 2009
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: