Í bók Sigurveigar Káradóttur Sultur allt árið sem Salka gaf út fyrir síðustu jól eru gnægt spennandi uppskrifta. Sigurveig leyfði Náttúrunni að birta nokkrar uppskriftir úr bókinn og hér koma tvær bláberjasultuuppskriftir:

Bláberjasulta

300 g bláber
150 g hrásykur
3 cl koníak
2-3 msk vatn

Allt nema koníakið er sett í pott og látið sjóða í 10-15 mínútur eða þar til vökvinn hefur minnkað um svona þriðjung. Þá er koníakinu bætt út í og látið gufa aðeins upp. Sultan er látin í krukkur eða borðuð strax. Það má hvort heldur nota fersk bláber eða frosin. Þessi sulta passar vel með pönnukökum og rjóma, en einnig er tilvalið að nota hana með mat eða til að bragðbæta sósur.

Bláberjasulta með hunangi og kanil

300 g bláber
150g hunang
1 tsk kanil

Allt sett saman í pott. Þegar suðan kemur upp er blandan látin bullsjóða í svona 10 mínútur. Sultan er góð með grófu brauði við morgunverðarborðið, eða út á gríska jógúrt.

Birt:
7. ágúst 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Sigurveig Káradóttir „Bláberjasultur - Sultur allt árið“, Náttúran.is: 7. ágúst 2013 URL: http://nature.is/d/2011/09/09/blaberjasultur-sultur-allt-arid/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. september 2011
breytt: 1. janúar 2013

Skilaboð: