Árlega kaupa íslendingar um 40.000 jólatré, flest þeirra eru innflutt eða um 75% hin 25% eru framleidd hér á landi. Umhverfisáhrif innfluttra trjáa er mun meiri en þeirra sem vaxa hér á landi. Bæði er að við ræktun þeirra eru notuð varnarefni þ.e. illgresislyf og skordýraeitur og auk þess þarf að flytja þau um langan veg með skipum sem brenna olíu. Allt þetta skilur eftir spor í vistkerfi jarðar.

Íslensk jólatré eru ekki aðeins umhverfisvænni kostur heldur skapa þau störf í heimabyggð og styrkja starfsemi skógræktarfélaganna um allt land en þau selja jólatré núna fyrir jólin. Þau félög sem verða með jólatrjáasölu helgina 15. - 16. desember eru:

Það verður nóg um að vera í jólaskógum skógræktarfélaganna nú um helgina, en þá verða þó nokkur félög með jólatrjáasölu:

  • Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga er með jólatrjáasölu á Gunnfríðarstöðum, sunnudaginn 16. desember, kl. 11-15.
  • Skógræktarfélag Austurlands er með jólatrjáasölu í Eyjólfsstaðaskógi, opið báða dagana kl. 12-16.
  • Skógræktarfélag Austur-Skaftfellinga er með jólatrjáasölu í Haukafelli á Mýrum laugardaginn 15. desember kl. 11-15.
  • Skógræktarfélag Árnesinga er með jólatrjáasölu að Snæfoksstöðum í Grímsnesi, opið kl. 11-16 báða dagana.
  • Skógræktarfélag Borgarfjarðar er með jólatrjáasölu í Reykholti laugardaginn 15. desember kl. 11-16, í samstarfi við björgunarsveitina Brák í Einkunnum ofan við Borgarnes 15. desember kl. 11-16 og í samstarfi við björgunarsveitina Heiðar í Grafarkoti í Stafholtstungum báða dagana kl. 12-16.
  • Skógræktarfélag Dýrafjarðar verður með jólatrjáasölu sunnudaginn 16. desember, kl. 13-16, á Söndum í Dýrafirði.
  • Skógræktarfélag Eyfirðinga er með jólatrjáasölu á Laugalandi á Þelamörk báða dagana kl. 11-15.
  • Skógræktarfélag Garðabæjar verður með jólatrjáasölu í Smalaholti laugardaginn 15. desember kl. 12-16.
  • Skógræktarfélag Grindavíkur verður með jólatrjáasölu í Selskógi laugardaginn 15. desember kl. 11-15.
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er með jólatrjáa- og skreytingasölu í Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar, við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Opið báða dagana kl. 10-18.
  • Skógræktarfélag Ísafjarðar verður með jólatrjáasölu í hlíðinni ofan við Bræðratungu, innan við Seljalandshverfið, kl. 13-16.
  • Skógræktarfélag Rangæinga er með jólatrjáasölu sunnudaginn 16. desember í Bolholtsskógi á Rangárvöllum kl. 12-15.
  • Skógræktarfélag Reykjavíkur er með jólatrjáasölu á Jólamarkaðinum á Elliðavatni, opið báða dagana kl. 11-17 og í Grýludal á Heiðmörk báða dagana, kl. 11-16.
  • Skógræktarfélag Skagfirðinga er með jólatrjáasölu sunnudaginn 16. desember í Hólaskógi og Varmahlíð, kl. 12-15.
  • Skógræktarfélagið Mörk er með jólatrjáasölu í Stóra-Hvammi, Fossi á Síðu, sunnudaginn 16. desember kl. 13-15.
  • Fossá í Hvalfirði – Skógræktarfélög Kópavogs, Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps eru með jólatrjáasölu á Fossá í Hvalfirði, opið báða dagana kl. 10:30-15.

Upplýsingar um skógræktarfélög sem verða með jólatrjáasölu verða settar inn á vef Skógræktarfélags Íslands jafnóðum og þær berast.

Ljósmynd: Rauðgreni, af vef Skógræktarfélags Íslands. Sjá einnig myndir af öðrum jólatrjástegundum sem í boði eru á skog.is.

 

Birt:
14. desember 2012
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Verið velkomin í jólaskóga skógræktarfélaganna“, Náttúran.is: 14. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/14/verid-velkomin-i-jolaskoga-skograektarfelaganna/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: