Eymundur Magnússon og Eygló  Björk Ólafsdóttir bændur í Vallanesi í Fljótsdalshéraði hafa á undanförnum árum plantað um milljón trjám á landi sínu í Vallanesi, mikið af þeim stafafura [Pinus contora].

Allt sem Eymundur og Eygló framleiða hvort sem eru tré, kartöflur, bygg eða grænkál er ræktað með aðferðum lífrænnar ræktunar enda ber bú þeirra vottun frá vottunarstofunni Túni um 100% lífræna ræktun í Vallanesi. Vörur eins og; bygg, olíur, grænmeti, hrökkkex, kryddsultur, tilbúnir réttir, lummu- og vöfflublanda o.fl. eru markaðssettar undir nafninu Móðir jörð.

Nú eru hundruðir nýfelldra lífrænt ræktaðra stafafura á leið frá Vallanesi í bæinn og munu þær vera á boðstólum frá og með laugardeginum 15. des. á Jólatorginu Ingólfstorgi. Opið verður daglega frá kl. 12:00-18:00 og á Þorláksmessu frá kl. 12:00 - 23:00

Sjá Móður Jörð hér á Grænum síðum.

Myndin er af stafafurum í Vallanesi.

Birt:
13. desember 2012
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífrænt ræktuð jólatré frá Móður Jörð á Jólatorginu Ingólfstorgi“, Náttúran.is: 13. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/13/lifraent-raektud-jolatre-fra-modur-jord-jolatorgin/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: