Matvælastofnun heldur fræðslufund um leyfileg aukefni í matvælum þriðjudaginn 27. nóvember 2012 kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um nýútkomna aukefnalista sem skilgreina hvaða aukefni má setja í matvæli og reglur um notkun þeirra.

Aukefnalistarnir taka gildi þann 1. júní 2013 og eru þeir hluti af reglugerð nr. 978/2011 um aukefni. Fjallað verður um efnisatriði reglugerðarinnar, uppbyggingu aukefnalistanna og gagnagrunn Evrópusambandsins í þeim tilgangi að auðvelda fyrirtækjum að framfylgja ákvæðum reglugerðinnar. Upplýsingar um aukefnareglur má nálgast á vef Matvælastofnunar.

Fyrirlesari er Jónína Þ. Stefánsdóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23.
Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að norðanverðu (Grafarvogsmegin).

Allir velkomnir!

Birt:
22. nóvember 2012
Höfundur:
Hjalti Andrason
Tilvitnun:
Hjalti Andrason „Fræðslufundur Matvælastofnunar um leyfileg aukefni í matvælum “, Náttúran.is: 22. nóvember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/11/22/fraedslufundur-matvaelastofnunar-um-leyfileg-aukef/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: