Veðurstofan vill minna á að nú geisar stormur (vindhraði á bilinu 18-25 m/s) á Vestfjörðum og á annesjum fyrir norðan. Mun veðrið færa sig inn á land norðan- og norðvestanlands eftir hádegið og einnig suður um vestanvert landið seinnipartinn með hviðum sem geta náð yfir 40 m/s.

Verður víða stormur á því svæði í kvöld og hvessir þá einnig sunnan- og austantil á landinu. Búast má við vindhraði þar verði 18-23 m/s og hviður yfir 40 m/s sunnan Vatnajökuls og hlémegin við fjöll. Þessu fylgir snjókoma á norðurhelmingi landins en allvíða slydda eða rigning við ströndina fram eftir degi. Staðbundið má búast við talsvert mikilli ofankomu, einkum nyrst á Tröllaskaga. Stöku él verða fyrir sunnan. Kólnar í veðri.
Vegfarendum er bent á að fylgjast náið með upplýsingum um færð og veður.
Dregur úr vindi og ofankomu seint í nótt, fyrst á Vestfjörðum, en ekki fyrr en seint á morgun austast.

 

Birt:
9. nóvember 2012
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Stormviðvörun frá Veðurstofunni“, Náttúran.is: 9. nóvember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/11/09/stormvidvorun-fra-vedurstofunni/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: