Fuglavernd hvetur veiðimenn til að sýna samstöðu um hófsama veiði – það er allra hagur að rjúpnaveiðar séu sjálfbærar til framtíðar.

Rjúpan er hænsnfugl og sá eini sem lifir villtur á Íslandi. Rjúpan er þýðingamikill fugl í íslensku vistkerfi og m.a. forsenda fyrir tilvist fálka hér á landi. Rjúpnastofninn sveiflast reglulega og stofnstærð virðist ná hámarki á um 10 ára fresti og getur verið allt að tífaldur munur á rjúpnamergð í lágmarki og hámarki. Líklega eru það nokkrir samverkandi þættir sem hafa áhrif á sveiflurnar svo sem fæðan, sníkjudýr og afrán.

Uppi eru kenningar um að umferð veiðimanna um búsvæði rjúpunnar auki viðbótarafföll umfram það sem veitt er. Við hvetjum til hóflegra veiða og að boð og bönn séu virt og minnum á að sá sem kaupir eða selur rjúpu eða afurðir hennar er að brjóta lög.

Ljósmynd: Daníel Bergmann, en myndin prýðir einnig jólakort Fuglaverndar í ár.

Birt:
26. október 2012
Tilvitnun:
Hólmfríður Arnardóttir „Fuglavernd hvetur til hófsemi meðal rjúpnaveiðimanna“, Náttúran.is: 26. október 2012 URL: http://nature.is/d/2012/10/26/fuglavernd-hvetur-til-hofsemi-medal-rjupnaveidiman/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: