Að hjóla á köldum svæðum er leikur einn

Framundan er hjólaráðstefnan Hjólum til framtíðar 2012 – rannsóknir og reynsla í Iðnó 21. september kl. 9 - 16.

Í ár er áherslan á það sem efst er á baugi í heimi hjólavísindanna og reynslu þeirra sem hafa eflt hjólreiðar í sínu nærumhverfi. Rannsókn um hjólreiðar á köldum svæðum er eitt lykilerinda ráðstefnunnar. Þar kemur fram að öflugasti hópur hjólreiðamanna borgarinnar Oulu er á aldrinum 15 – 25 árs og um 30% þeirra hjóla árið um kring allra sinna ferða í allt að 30 stiga frosti. Til samanburðar hefur þessi hópur hjólandi verið nánast ósýnilegur á Íslandi.

Til landsins koma virtir vísindamenn með fyrirlestra frá Bretlandi og Finnlandi. Einnig verða innlendar hjólatengdar rannsóknarniðurstöður og rannsóknir kynntar auk þess sem farið verður yfir reynslu einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga af eflingu hjólreiða.

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Jón Gnarr borgarstjóri og Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor HR munu ávarpa ráðstefnuna. Þorsteinn Hermannsson samgönguverkfræðingur verður fundarstjóri dagsins.

Þetta er önnur ráðstefna Hjólafærni á Íslandi og Landssamtaka hjólreiðamanna sem haldin er í Evrópsku samgönguvikunni. Á síðasta ári héldum við Hjólum til framtíðar og nú er það Hjólum til framtíðar 2012- rannsóknir og reynsla. Á næsta ári, 20. sept. 2013, verður það Hjólum til framtíðar 2013; réttur barna til hjólreiða.

Hjólum til framtíðar 2012 – rannsóknir og reynsla, er samvinnu verkefni fjölmargra aðila. Hjólafærni á Íslandi og Landssamtök hjólreiðamanna skipuleggja ráðstefnuna í góðri samvinnu við Reykjavíkurborg, Vegagerðina, Landlæknisembættið, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Ferðamálastofu og fleiri góða aðila.

Skráning á ráðstefnuna er hér: Hjólum til framtíðar 2012; skráning Skráningu lýkur á miðnætti 19. sept.

Aðgangur að ráðstefnunni er 4.500 kr. og 2.000 kr. fyrir námsmenn og hjólandi almenningi.  Erindin hennar verða aðgengileg á vef Landssamtaka hjólreiðamanna www.lhm.is eftir ráðstefnuna.Sent út á netinuÞeir sem eiga lengra að sækja geta fylgst með ráðstefnunni í beinni útsendingu á netinu þannig að hún á að vera aðgengileg áhugasömum um víða veröld. Leiðbeiningar til að tengjast eru hér að neðan.

1.Uppsetning á nýjustu útgáfu Java:
Til að byrja með er nauðsynlegt að tryggja að tölvan sé með nýjustu útgáfu af Java-forritinu (er á öllum tölvum en ekki víst að þið séuð með það nýjasta). Þannig að best er að byrja á að fara inn á www.java.com, hlaða þar niður nýjustu útgáfu (áberandi hnappur á miðjum skjánum) og setja upp.
Þetta getur tekið nokkrar mínútur.

2.Tengjast fundinum:
Til að tengjast fundinum er farið inn á þessa vefslóð sem verður virk skömmu áður en ráðstefnan hefst:
https://fundur.thekking.is/startcenter/Join.xhtml?sinr=257111354&sipw=nv64
Athugið að samþykkja þau skilaboð sem upp koma en í flestum tilfellum kemur tvívegis upp gluggi þar sem smellt er á „run“. Eftir það á fundur að hefjast.

Allar nánari upplýsingar veitir Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra Hjólafærni á Íslandi í s. 864 2776
hjolafaerni@hjolafaerni.isNánari upplýsingar og dragskrá má einnig skoða á vef Landssamtaka hjólreiðamanna: http://lhm.is/hjolad-til-framtidar-2012

Dagskrá

9.00 - 9.05 Setning borgarstjóra, Jóns Gnarr.

Hjólaskálin afhent; viðurkenning fyrir framúrskarandi hjólaeflingu.

9.05 - 9.50 Where have we come from? Where are we going to? Academic  Cycling Research.
Peter Cox, Senior Lecturer in Sociology at the University of Chester, Great Britain

9.50 - 10.10 Kaffihlé

10.10 - 10.30  Mat á gæðum hjólaleiða
Davíð Arnar Stefánsson, meistaranemi í landfræði við Háskóla Íslands

10.30 - 10.50 Hjólað til og frá vinnu: Vísindaleg reynslusaga með ögn af tilfinningasemi
Björn H. Barkarson, umhverfisfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf

10.50 - 11.10 Hjólað í vinnuna, rannsókn á meðal liðsstjóra keppninnar
Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,

11.10 - 11.30   Hjólað í skólann - rannsókn á reiðhjólanotkun framhaldsskólanema og viðhorfi þeirra til hjólreiða.
Bjarney Gunnarsdóttir, íþrótta- og hjólafærnikennari, B.S. í íþrótta- og heilsufræði.

11.30 - 11.50 Áhrif umhverfisupplifunar á samgönguhjólreiðafólk
Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ, doktorsnemi i skipulagsfræði við Norwegian University of Life Sciences

11.50 - 12.50  Hádegismatur

12.50 - 13.00  Ávarp menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur

13.00 - 13.40  Winter cycling is an option
Jaakko Ylinampa, Director, Lapland´s Centre for Economic Development, Transport and the Environment

13.40 - 14.00   Allt á hreyfingu: Hjólreiðar og borgarrými
Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands

14.00 - 14.20   Hjólastígar Reykjavíkurborgar - samstarf við Vegagerðina

Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar

14.20 - 14.35   Samgöngusamningar - er þess virði að láta fjármuni í þetta? Reynslan hjá Matís

Steinar B. Aðalbjörnsson, markaðsstjóri Matís

14.35 - 14.50 Kaffihlé

14.50 - 15.30 Pallborðsumræður: Hvernig eflum við hjólarannsóknir?
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri,
Peter Cox dósent í félagsvísindum við háskólann í Chester,
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skipulagsfræðingur og aðjúnkt við HR,
Jaakko Ylinampa forstjóri við Lapland´s Centre for Economic Development, Transport and the Environment og
Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ, doktorsnemi i skipulagsfræði.

15:30 - 15:40 Samantekt; Þorsteinn Hermannsson

15:40 - 15:50 Réttur barna til að hjóla
Sesselja Traustadóttir og Morten Lange kynna ályktun Velo-City Global 2012 og Hjólum til framtíðar 2013 - virðum rétt barna til hjólreiða; á öllum aldri.

15:50 - 16:00 Ráðstefnuslit, Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR

16:00 - 17:00 Móttaka í Ráðhúsinu

 

Fundarstjóri verður Þorsteinn Hermannsson, samgönguverkfræðingur hjá Mannviti.                                  
Þorsteinn stýrir einnig pallborðsumræðunum.

Birt:
17. september 2012
Höfundur:
Morten Lange
Tilvitnun:
Morten Lange „Hjólum til framtíðar 2012 “, Náttúran.is: 17. september 2012 URL: http://nature.is/d/2012/09/17/hjolaradstefna/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: