Undirbúningur vegna Dags íslenskrar náttúru er nú kominn á fullt skrið en dagurinn verður haldinn hátíðlegur í annað sinn sunnudaginn 16. september næstkomandi. Sérstakt vefsvæði tileinkað deginum hefur verið opnað á vef umhverfisráðuneytisins.

Dagskráin er í mótun en meðal annars munu stofnanir umhverfisráðuneytisins efna til ýmiss konar viðburða í tilefni dagsins sem verða auglýstir þegar nær dregur. Umhverfisráðherra efnir til hátíðarsamkomu þar sem Fjölmiðlaverðlaun ráðuneytisins og Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verða afhent. Þá hefur umhverfisráðherra hvatt sveitarfélög, skóla, félagasamtök og fjölmiðla til að nota daginn til að vekja athygli á gildi náttúrunnar og þeim náttúruperlum sem er að finna um allt land.

Dagskrá dagsins verður birt á vefsvæði sem sett hefur verið upp í tilefni dagsins á vef umhverfisráðuneytisins. Er öllum sem minnast dagsins með einum eða öðrum hætti boðið að senda upplýsingar um viðburði til upplýsingafulltrúa ráðuneytisins með því að senda póst á netfangið: bergthora.njala@umhverfisraduneyti.is og verða þær þá birtar undir dagskránni á vefsvæðinu.

Umhverfisráðuneytið hefur óskað eftir tilnefningum til Fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytisins og Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningar með rökstuðningi sendist Umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, eða á netfangið postur@umhverfisraduneyti.is fyrir 15. ágúst 2012.

Sjá þá sem hafa hlotið Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti til þessa hér á Grænum síðum.

Sjá þann sem hlotið hefur Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins til þessa hér á Grænum síðum.

Ljósmynd: Bláberjalyng, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
13. ágúst 2012
Tilvitnun:
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir „Dagur íslenskrar náttúru haldinn hátíðlegur öðru sinni“, Náttúran.is: 13. ágúst 2012 URL: http://nature.is/d/2012/08/13/dagur-islenskrar-natturu-haldinn-hatidlegur-odru-s/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: