Náttúran birtir nú sjöunda sáðalmanak ársins 2012 en Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

1.   ágúst  00 – 06  ávextir, 07 – 24 rót
2.   ágúst  00 – 24  rót
3.   ágúst  00 – 06  rót, 07 – 24 blóm
4.   ágúst  00 – 24  blóm
5.   ágúst  00 – 05  blóm, 06 – 24 blað
6.   ágúst  00 – 24  blað
7.   ágúst  00 – 24  blað
8.   ágúst  00 – 06  blað, 07 – 24 ávextir
9.   ágúst  00 – 15  ávextir, 16 – 24 blóm
10. ágúst  00 – 15  blóm, 16 – 24 rót
11. ágúst  00 – 18  rót, 18 – 24 óhagstætt
12. ágúst  00 – 03  óhagstætt, 03 – 24 rót
13. ágúst  00 – 07  rót, 08 – 17 blóm, 17 – 24 óhagstætt
14. ágúst  00 – 03  óhagstætt, 03 – 24 blóm
15. ágúst  00 – 16  blóm, 17 – 24 ávexti
16. ágúst  00 – 06  00 – 24 blað
17. ágúst  00 – 06  blað, 07 – 24 ávextir
18. ágúst  00 – 17  ávextir, 18 – 24 blað
19. ágúst  00 – 04  blað, 05 – 13 ávextir, 13 – 24 óhagstætt
20. ágúst  00 – 24  óhagstætt
21. ágúst  00 – 24  rót
22. ágúst  00 – 24  rót
23. ágúst  00 – 04  blóm, 04 – 24 óhagstætt
24. ágúst  00 – 18  óhagstætt, 18 – 24 ávextir
25. ágúst  00 – 24  blað
26. ágúst  00 – 11  blað, 12 – 24 ávextir
27. ágúst  00 – 24  ávextir
28. ágúst  00 – 15  ávextir, 16 – 24 rót
29. ágúst  00 – 18  rót, 19 – 24 ávextir
30. ágúst  00 – 05  ávextir, 06 – 16 rót, 17 – 24 blóm
31. ágúst  00 – 24  blóm.

Fram að hádegi þann 12. og frá og með 26. ágúst er hagstætt tímabil til fræsöfnunar.
Frá hádegi þann 12. til og með 25. ágúst hagstætt til uppskeru rótarávaxta.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir ágúst 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Hönnun: Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
31. júlí 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Hildur Hákonardóttir „Sáðalmanak fyrir ágúst 2012“, Náttúran.is: 31. júlí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/07/31/sadalmanak-fyrir-agust-2012/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: