Ari Hultqvist, áður verslunarstjóri í Yggdrasil, opnar sölubása fyrir lífrænar og íslenskar vörur á miðju Lækjartorgi í dag undir nafninu LÍFgRÆNT en markaðurinn er rekinn í samvinnu við Græna Hlekkinn. Ari var einnig með LÍFgRÆNT á Lækjartorgi í fyrrasumar.

Á torginu selur Ari grænmeti, brauð, kökur, sultur, safa, söl, þara, fjallagrös, te o.fl. frá öllum helstu framleiðendum lífrænna vara á Íslandi auk þess sem hann selur lífræna innflutta ávexti.

Vörurnar sem Ari selur eru frá: Græna Hlekknum, Akri, Brauðhúsinu, Engi, Sólheimum, Skaftholti, Móður Jörð, Löngumýri, Íslensk Hollustu (íslenskt, ekki lífrænt vottað), NFLÍ og Jóhönnu á Dalsá (ræktar lífrænt en er ekki með vottun).

Sjá Lífgrænt og staðsetninguna á Lækjartorgi hér á Grænum síðum.

Birt:
10. júlí 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „LÍFgRÆNT á Lækjartorgi“, Náttúran.is: 10. júlí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/07/09/lifgraent-laekjartorgi/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. júlí 2012
breytt: 10. júlí 2012

Skilaboð: