Í dag þ. 8. júlí er íslenski safnadagurinn haldinn hátíðlegur vítt og breitt um landið. Söfn og önnur menningarsetur opna dyr sínar og bjóða mörg hver upp á sérstakar uppákomur og ókeypis aðgang í tilefni dagsins.

Íslenski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 1997 að frumkvæði safnmanna sjálfra. Markmiðið með deginum er að benda á mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar og þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og skemmtunar sem finna má á söfnum.

Sjá dagskrána eftir landshlutum hér:

Þú finnur öll söfn og menningarsetur á landinu hér á Græna Íslandskortinu.

Grafík: Green Map® myndmerki grænkortaflokkanna; „Menningarsetur“ og „Íslenskir þjóðhættir“ en auk þeirra eru flokkarnir; „Llst“, „Söfn“, „Sagnfræðileg sérkenni“, „Menningarlegar uppákomur“ og „Barnvænn staður“, flokkar sem taka til menningarstaða á landinu.

Birt:
7. júlí 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Íslenski safnadagurinn 2012“, Náttúran.is: 7. júlí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/07/07/islenski-safnadagurinn-2012/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 8. júlí 2012

Skilaboð: