Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2011.

Óskað er efti því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síður en sunnudaginn 25. mars n.k. merktar „Kuðungurinn“, á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Sjá þau fyrirtæki sem hlotið hafa Kuðunginn hingað til hér á Grænum siðum.

Nánari upplýsingar á www.umhverfisraduneyti.is/kudungurinn.

Birt:
22. mars 2012
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Auglýst eftir tilnefningum til Kuðungsins umhverfisviðurkenningar umhverfisráðuneytisins“, Náttúran.is: 22. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/03/auglyst-eftir-tilnefningum-til-kudungsins-umhverfi/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 3. mars 2012
breytt: 22. mars 2012

Skilaboð: