Í tilefni HönnunarMars mun Spark Design Space opna sýningu á verkefninu Stefnumót hönnuða og bænda, þriðjudaginn 20. mars kl. 17:00.

Verkefnið stóð yfir í fjögur ár og er þetta í fyrsta sinn sem það er kynnt í heild sinni. Markmiðið með sýningunni er að miðla þessu umfangsmikla verkefni svo að aðrir geti nýtt sér þá reynslu og þekkingu sem varð til á tímabilinu.

Verkefnið er á vegum Listaháskóla Íslands. Styrktaraðilar eru: Tækniþróunarsjóður, Framleiðnisjóður Landbúnaðarins og Hönnunarsjóður Auroru. Sérstakur samstarfsaðili er Matís Ohf.

Sýningin í Spark Design Space stendur frá 20. mars - 19. maí 2012.

Nánar um Stefnumót hönnuða og bænda:

Stefnumót hönnuða og bænda er nýsköpunarverkefni Listaháskóla Íslands þar sem tveim starfsstéttum er teflt saman með það að markmiði að þróa matarafurðir í hæsta gæðaflokki þar sem hönnun og rekjanleiki eru höfð að leiðarljósi. Nýnæmi verkefnisins felst í því að tefla saman einni elstu starfsstétt landsins, bændum, og einni yngstu starfstétt landsins, vöruhönnuðum.

Kveikjan:

Það var ýmislegt í tíðarandanum árið 2006 sem ýtti undir tilurð Stefnumóts hönnuða og bænda. Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands, fór þess á leit við Brynhildi Pálsdóttur og Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur, vöruhönnuði, að þróa 6 vikna námskeið í matarhönnun. Sigríður hafði lagt mikla áherslu á að tengja vöruhönnunarbrautina við innlenda framleiðslu til að efla meðvitund um mikilvægi hönnunar og tengja nemendur út í samfélagið. Brynhildur og Guðfinna höfðu einbeitt sér að því að vinna með staðbundin hráefni og höfðu lagt sérstaka áherslu á matarhönnun sem þá var að ryðja sér til rúms alþjóðlega. „Okkur fannst tækifærin fyrir vöruhönnuði á Íslandi liggja í matarhönnun; hér höfðum við nóg af hráefni sem vantaði alveg að skapa sérstöðu.“ Á þessum tíma hafði Andri Snær Magnason nýlega gefið út bókina Draumalandið þar sem hann gagnrýnir harðlega meðferð Íslendinga á náttúrunni. Einnig gagnrýnir hann íslenskan landbúnað fyrir að svara ekki kalli neytenda um staðbunda og góða matvöru og spyr „Af hverju slefar maður ekki hálfan hringinn í kringum landið?“ Fram að þessu höfðu bændur ekki haft leyfi til að framleiða afurðir úr sínu eigin hráefni. Ólíkt flestum öðrum Evrópulöndum þá var hér bannað með lögum að slátra, selja eða fullvinna eigin afurðir. Það var ekki fyrr en árið 2006 sem að Landbúnaðarráðuneytið breytti þeim reglum og leyfði loks heimavinnslu býla. Þetta opnaði ný tækifæri fyrir bændur til að skapa hráefni sínu sérstöðu og aukin verðmæti. Í kjölfarið voru samtökin Beint frá býli stofnuð til að hvetja bændur til að hefja heimavinnslu. Á sama tíma voru Norðurlöndin að kynna til leiks svokallað Nýnorrænt eldhús sem matreiðslumeistarinn Gunnar Karl á Dilli fór fyrir hér á landi. Það voru því margir samverkandi þættir sem urðu kveikjan að Stefnumóti hönnuða og bænda.

Við litum á býlin sem lítil fyrirtæki út um land allt og sáum ótal tækifæri. Við sáum tækifæri til að skapa nýjar hefðir. Við vildum sjá matarafurðir byggðar á sérstöðu og góðri hönnun, okkur leiddist óöryggið og eftirlíkingarnar sem voru ríkjandi á markaði. Hér fannst okkur þörf á hönnuðum og við höfðum trú á því að við gætum sýnt fram á ný tækifæri í matvælaframleiðslu með aðkomu hönnunar. Það er vegna þessa sem Stefnumót hönnuða og bænda varð til.“ (S.S., G.M.M og B.P.)

Stefnumót hönnuða og bænda stóð yfir í fjögur ár, frá 2007 – 2011 og skiptist í tvo hluta; námskeið og rannsókn. Á þessum tíma var námskeiðið (hluti af BA námi í vöruhönnun) kennt þrisvar sinnum þar sem 30 nemendur og 11 býli víðs vegar af landinu tóku þátt. Árið 2008 fékk verkefnið styrk úr Tækniþróunarsjóði og Framleiðnisjóði Landbúnaðarins til að hefja rannsóknarhluta Stefnumóts hönnuða og bænda. Rannsóknarhlutinn var þverfagleg samvinna þar sem Matís var formlegur samstarfsaðili. Þetta gerði það kleift að fjórar hugmyndir úr námskeiðinu urðu að fullþróuðum afurðum.

Stefnumót hönnuða og bænda var alfarið unnið í þágu býlanna og var hugsað sem gjöf til bændasamfélagsins í þeirri von að það gæti verið fordæmisgefandi og skapað margföldunaráhrif út í samfélagið. Markmiðið er að miðla þessu umfangsmikla verkefni svo að aðrir geti nýtt sér þá reynslu og þekkingu sem varð til á tímabilinu.

Birt:
17. mars 2012
Tilvitnun:
Sigríður Sigurjónsdóttir „Stefnumót hönnuða og bænda á HönnunarMars“, Náttúran.is: 17. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/17/stefnumot-honnuda-og-baenda-honnunarmars/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: