Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp um myrkurgæði, en hópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um þau lög og reglur sem gilda um ljósmengun á Íslandi og víðar. Hópurinn skal skila tillögum um hugsanlegar úrbætur á þessu sviði til umhverfisráðherra næstkomandi haust.

Ákveðið var að skipa starfshópinn í framhaldi af fyrirspurn Marðar Árnasonar þingmanns á Alþingi í janúar síðastliðnum um ljósmengun. Meðal verkefna hópsins er að hafa samráð við fræðimenn um hver séu heppileg mælanleg markmið um myrkurgæði á ýmsum tegundum þéttbýlissvæða og í dreifbýli. Sömuleiðis mun hópurinn afla vitneskju um ráðstafanir gegn ljósmengun í öðrum ríkjum og hvort þar sé stuðst við staðla eða önnur viðmið í þessu sambandi. Hópurinn mun einnig kanna möguleika á að stofna til samstarfsvettvangs með aðild sveitarfélaga, fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga um að hrinda af stað vitundarvakningu í þessum efnum. Loks er stefnt að því að hópurinn standi fyrir málþingi þar sem fyrstu niðurstöður hópsins verða kynntar og kallað verður eftir athugasemdum almennings.

Stefnt er að því að hópurinn skili niðurstöðum sínum til umhverfisráðherra næstkomandi haust þar sem settar yrðu fram tillögur um ákvæði sem taki til ljósmengunar og myrkurgæða í lögum, reglugerðum og samþykktum ríkis og sveitarfélaga. Að auki mun hópurinn gera drög að áætlun um nauðsynlegar rannsóknir á áhrifum ljósmengunar á myrkurgæði helstu þéttbýlissvæða á Íslandi, og hversu langt hún nær út fyrir þéttbýliskjarnana.

Formaður starfshópsins er Mörður Árnason þingmaður en auk hans sitja í hópnum Snævarr Guðmundsson landfræðingur, Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum, Íris Bjargmundardóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu og Andrés Ingi Jónsson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra.

Birt:
8. mars 2012
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Starfshópur um myrkurgæði skipaður“, Náttúran.is: 8. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/08/starfshopur-um-myrkurgaedi-skipadur/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: