Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands hafna því alfarið að nánast allt suðvesturhorn landsins verði  gert að einu samfelldu orkuvinnslusvæði eins og gert er ráð fyrir í drögum að þingsályktun að Rammaáætlun. Samtökin skora á þingmenn Suðurkjördæmis, Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæmanna að koma í veg fyrir að mikilvægum útivistarsvæðum og náttúruperlum verði fórnað undir orkunýtingu sem muni t.d. stórskaða möguleika til uppbyggingar ferðaþjónustu á svæðinu.

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands hafa sent öllum þingmönnum kjördæmanna bréf þessa efnis.

Af þeim 19 virkjunarkostum á Reykjanesskaga, sem fjallað er um í drögunum, fara einungis þrír í verndarflokk. Fjögur svæði hafa þegar verið virkjuð, sjö önnur féllu í orkunýtingarflokk.  Samtals fara því ellefu svæði undir orkunýtingu. Fimm svæði fara í biðflokk en gera má ráð fyrir að flest þeirra fari í orkunýtingu síðar. Í tillögunni er t.d. kveðið á um að Austurengjahver í Krýsuvík og Trölladyngja fari í orkunýtingu verði önnur svæði í Reykjanesfólkvangi virkjanleg.  Á þessu má sjá að náttúruvernd á suðvesturlandi fer verulega halloka í Rammaáætlun, að óbreyttu.

Reykjanesfólkvangi, einu vinsælasta útivistarsvæðinu á suðvesturhorni landsins, verður breytt í  iðnaðarsvæði fari svæðið í orkunýtingu eins og gert er ráð fyrir í drögunum.  Slíkt er algjörlega óásættanlegt nú á tímum þegar mikilvægi ósnortinna náttúrusvæða í grennd við þéttbýli hefur aldrei verið meira.

Sem fulltrúum náttúruverndarsamtaka er okkur tvennt efst í huga, annarsvegar náttúruvernd og hinsvegar heilsa og vellíðan landsmanna.  Geyst hefur verið farið í virkjun jarðhitans á Hellisheiði með vandamálum sem ekki hefur verið unnt að leysa með viðunandi hætti. Brennisteinsvetnismengun er of mikil og svæðið leikur reglulega á reiðiskjálfi með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa Hveragerðis.

Hver og einn á að fá notið ósnortinnar og heilnæmar náttúru, auk þess sem dýra og jurtalíf skal njóta fullrar verndar. Á Suðvesturlandi býr yfirgnæfandi meirihluti landsmanna, landshlutinn nær þó ekki 3% af heildarflatarmáli Íslands. Það er kunnara en frá þurfi að segja að ágengni af ýmsu tagi er mikil gagnvart náttúru á Suðvesturlandi og þykir mörgum, þar á meðal okkur, að mál sé að linni og snúið skuli til betri vegar.

Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands.

Sjá Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands á Facebook.

Birt:
27. febrúar 2012
Höfundur:
Ellert Grétarsson
Tilvitnun:
Ellert Grétarsson „Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands skora á þingmenn að bjarga Reykjanesskaga“, Náttúran.is: 27. febrúar 2012 URL: http://nature.is/d/2012/02/27/natturuverndarsamtok-sudvesturlands-skora-thingmen/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 26. júlí 2012

Skilaboð: