Fyrsta sáðalmanak fyrir árið 2012 lítur nú dagsins ljós en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tók saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar í fyrra og heldur áfram að taka þau saman fyrir okkur í ár.

Efnið er unnið úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur  Tími

1.  febrúar   00 – 04 ávöxtur, 05 – 24  rót
2.  febrúar   00 – 17 rót, 17 – 24 óhagstætt
3.  febrúar   00 – 24 rót
4.  febrúar   00 – 04 rót,  05 – 24 blóm
5.  febrúar   00 – 24 blóm
6.  febrúar   00– 04 blóm, 05 – 24 blað
7.  febrúar   00– 20 blað, 21 – 24 ávöxtur
8.  febrúar   00 – 24 ávöxtur
9.  febrúar   00 – 12 ávöxtur, 13 – 24 óhagstætt
10. febrúar  00 – 04 óhagstætt, 05 – 08 ávöxtur, 09 – 24 rót
11. febrúar  00 – 05 rót, 05 – 24 óhagstætt
12. febrúar  00 – 24 rót
13. febrúar  00 – 12 rót, 14 – 24 blóm
14. febrúar  00 - 18 blóm, 19 –24 óhagstætt
15. febrúar  00 – 24 óhagstætt
16. febrúar  00 – 17 óhagstætt, 18 – 24 blað
17. febrúar  00 – 24 ávöxtur
18. febrúar  00 – 24 ávöxtur
19. febrúar  00 – 05 ávöxtur,  06 – 24 rót
20. febrúar  00 – 24 rót
21. febrúar  00 – 09 rót, 10 – 24 blóm
22. febrúar  00 – 24 blóm
23. febrúar  00 – 20 blóm, 21 – 24 blað
24. febrúar  00 – 24 blað
25. febrúar  00 – 13 blað, 14 – 24 óhagstætt
26. febrúar  00 – 24 óhagstætt
27. febrúar  00 – 24 ávöxtur
28. febrúar  00 – 13 ávöxtur, 14 – 24 rót
29. febrúar  00 – 19 rót, 20 – 24 óhagstætt

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur. Upplýsingarnar eru úr garðabók Maríu Thun.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir febrúar 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
11. febrúar 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Hildur Hákonardóttir „Sáðalmanak fyrir febrúar 2012“, Náttúran.is: 11. febrúar 2012 URL: http://nature.is/d/2012/01/24/sadalmanak-fyrir-februar-2012/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 24. janúar 2012
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: