Blóm og aðrar jurtir eru ýmist villtar eða framleiddar, þ.e. komið á legg með sáningu fræja eða gróðursetningu t.a.m. stiklinga. Þær jurtir sem eru á boðstólum hérlendis eru ýmist villtar, fluttar inn eða framleiddar innanlands. Eftirlit með innflutningi fræja, lifandi jurta, afskorinna blóma og áburðar er í höndum Matvælastofnunar. Hlutverk stofnunarinnar er m.a. að hindra að sjúkdómar eða meindýr sem berist til landsins gætu valdið tjóni á innlendri plönturæktun. Lífræn fræ og lífrænt ræktaðar plöntur er nú hægt að fá frá mörgum framleiðendum og eftirspurnin eykst stöðugt. 

Lífræn ræktun byggist á því að ekki eru notuð lyf og varnarefni í jarðveginn og einungis er notaður lífrænn áburður. Umhverfisáhrif slíkrar framleiðslu eru mun jákvæðari en við hefðbundna ræktun.

Þú sérð alla aðila með lífræna vottun undir „Sjálfbær lífsstíll / Grænt hagkerfi / Vottað lífrænt“ á Græna kortinu á Náttúran.is. 

Sjá Græna kortið.

Birt:
31. maí 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Blóm“, Náttúran.is: 31. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2007/06/22/eldhsi-blm/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 22. júní 2007
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: