HugmyndinHugmyndin að Náttúrunni.is fæddist sumarið 2002 og hefur verið í þróun æ síðan. Frumkvöðull verkefnisins er Guðrún Arndís Tryggvadóttir myndlistarmaður (sjá ferilskrá). Hugmyndin byggir á því að nota veraldarvefinn sem tæki til að skapa sjálfbært samfélag. Vefurinn er bæði fréttamiðill og upplýsingaveita um umhverfisvænan lífsstíl. Markmiðið er að gera neytendum umhverfisvænar lausnir sýnilegri og aðgengilegri með því að tengja á milli vistvænnar aðferðafræði á öllum sviðum og raunverulegs vöru- og þjónustuframboðs í landinu.

Náttúran hefur gengið í gegnum langt ferli og hefur mótast í samvinnu við fjölda aðila þann tíma sem vefurinn hefur verið í þróun. Haustið 2005 var frumgerð Náttúrunnar, sem nefndist Grasagudda.is, sett í loftið. Á Grasaguddu var leitast við að tengja saman upplýsingar um umhverfismál hvaðanæva að og flytja fréttir. Grasagudda.is sameinaðist síðan Náttúrunni.is þann 25. apríl 2007.

Náttúran.is fagnaði 5 ára afmæli sínu þ. 25. apríl 2012 en þann sama dag fékk Náttúran.is virtustu umhverfisverðlaun landsins Kuðunginn umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins fyrir „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki“. Í rökstuðningi valnefndar segir ennfremur að „stofnendur og eigendur hennar séu brautryðjendur á þessum vettvangi knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

„Vefsíðan hefur innleitt nýja hugsun í umhverfisvitund Íslendinga. Þar eru á einum stað aðgengilegar leiðbeiningar sem auðvelda fólki að taka upp sjálfbæran og umhverfisvænni lífsstíl.

Vefurinn gengir mikilvægu hlutverki í upplýsingamiðlun og menntun almennings og fyrirtækja. Þar er hægt að fá upplýsingar um umhverfismál heimilisins, um orkusparnað, vistvæn innkaup, betri nýtingu matvæla, sorpflokkun, um hvernig skuli flokka hluti og hvar sé hægt að skila hverjum hlut, þar er að finna skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig, sem oft vefst fyrir fólki. Einnig geymir vefurinn fróðleik um  hvernig hægt sé að forðast hættuleg efni við innkaup á vörum, þar er yfirlit yfir aukaefni í matvörum og skilgreiningar á umhverfismerkingum.“

Enska útgáfa Náttúrunnar Nature.is fór í loftið í júní 2008.
Þýska útgáfa Náttúrunnar Natur.is fór í loftið í apríl 2010.

Grafík: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Natturan.is.

Birt:
21. febrúar 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Saga Náttúrunnar“, Náttúran.is: 21. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2007/04/06/markmid/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 6. apríl 2007
breytt: 2. júlí 2014

Skilaboð: