Hér á Náttúrumarkaði, vefverslun Náttúran.is, er úrval af lífrænum, náttúrulegum og umhverfisvottuðum vörum á boðstólum. Til þess að geta veitt neytendum upplýsingar um umhverfisvænar og heilbrigðar vörur tengist hver vara ítarlegum upplýsingum um innihald, vottanir og endurvinnslumöguleika. Hugmyndin er að þegar að vafrað er um verslunina læri maður hvað merkin þýða með því að renna yfir þau. Þetta á við um umhverfismerkin, lífrænu vottunarmerkin og siðgæðis- og endurvinnslumerkin. Í dag eru yfir þrjúhundruð vörur í tuttuguogníu deildum á markaðinum og úrvalið eykst stöðugt. Stefnt er að því að geta boðið upp á vörur úr öllum vöruflokkum.

Annað sem að Náttúrumarkaðurinn á netinu getur haft fram yfir venjulegar verslanir er að í bögglinum koma margar vörutegundir heim að dyrum, í safnsendingu. Kolefnislosun og önnur umhverfisáhrif af flutningum eru því í algeru lágmarki þar sem Íslandspóstur á hvort eð er flesta daga leið heim til þín með annan póst. Að keyra á heimilisbílnum frá einni búð til annarar mengar meira og kostar þig bæði tíma og peninga.

Að versla á Náttúrumarkaðinum getur því bæði verið mun ódýrara og umhverfisvænna þegar allt kemur til alls. Veldu deild hér til hægri á síðunni. Ef þú ert að leita að ákveðinni vöru eða vilt þrengja leitina og finna ákveðið vörumerki eða vottun opnar þú Vöruleit flipann á Náttúrumarkaði.

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?

Grafík: Náttúrumarkaður og vottunarmerkin, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.

Birt:
8. janúar 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Hvað er svona umhverfisvænt við að versla á Náttúrumarkaði?“, Náttúran.is: 8. janúar 2012 URL: http://nature.is/d/2007/10/02/hva-er-svona-umhverfisvnt-vi-versla-nttrumarkai/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. október 2007
breytt: 23. janúar 2012

Skilaboð: