Í áraraðir hefur Herdís Þorvaldsdólttir kveðið sér hljóðs, á fundum, í blöðum og alls staðar sem hún hefur stigið niður fæti, og bent á það, með góðum rökum, að lausaganga búfjár sé aðal-umhverfisvandi Íslendinga.

Oftar en ekki hefur hugprútt fólk látið sem hér væri um nöldur í elliærri kerlingu að ræða og frekar þótt uppákoman fyndin en nokkuð annað. Eru náttúruverndarsinnar þar ekki undanskildir.

Herdísi er þó ekki hlátur í hug og fer gegn öllu siðprýði í baráttu sinni gegn stöðnuðum hugsunarhætti og blindni gagnvart eins augljósum vanda og lausafjárganga búfjár er í raun og veru.

Nú hefur Herdís gert kvikmynd um afleiðingar lausagöngu búfjár á Íslandi „Fjallkonan hrópar á vægð“ en hún verður frumsýnd í dag á kvikmyndahátiðinni Skjaldborg sem haldin er á Patreksfirði.

Sjá myndbrot úr Fjallkonan hrópar á vægð hér.

Mynd: Nokkrar úrklippur blaðagreina Herdísar, úr myndinni.

Birt:
27. maí 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fjallkonan hrópar á vægð“, Náttúran.is: 27. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/05/27/fjallkonan-hropar-vaegd/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: