Náttúran.is býður upp á kennsluefni s.s. sérsniðin plaköt, mynd- og textaefni sem nýst getur til kennslu og upplýsingagjafar, utan vefsins. Plakötin geta verið í þeim stærðum sem henta hverjum og einum.

Einnig er hægt að fá kynningar til félaga, fyrirtækja, stofnana og skóla og er kynningin þá sérsniðin að áhugasviði eða þörfum hvers hóps fyrir sig. Vægt gjald er tekið fyrir sérhannað prentað efni og kynningar út um allt land. Netfang er nature@nature.is og símar 483 1500 og 863 5490.

Við minnum einnig á að Náttúruspilin eru tilvalið kennslutæki fyrir alla aldurshópa. Vorið 2009 var öllum grunn- og framhaldsskólum í landinu og í apríl 2010 öllum leikskólum sendur stokkur af Náttúruspilum að gjöf en Menntamálaráðuneytið tók þátt í kostnaðinum með styrkframlagi í bæði skiptin. Sjá Náttúruspilin hér á Náttúrumarkaðinum. Einnig er hægt að fá 2. útgáfu af Græna Reykjavíkurkortinu sem við gáfum út í sumar. Á bakhlið kortsins er veggmynd af fræðsluþættinum Húsið og umhverfið.

Plakat: Lofslagsbreytingar, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
2. janúar 2012
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fræðsluefni Náttúrunnar“, Náttúran.is: 2. janúar 2012 URL: http://nature.is/d/2012/01/02/fraedsluefni-natturunnar/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: